Heilbrigt hjarta með samvinnu
30. september verður haldinn Alþjóðlegur hjartadagur í yfir 100 löndum um allan heim. Hjartavernd heldur upp á daginn með veglegum hætti á Íslandi í ár í samstarfi við Sjóvá, Hjartaheill og Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.
Fyrirlestrar
Í tilefni dagsins verður fyrirlestraröð í Salnum Kópavogi þann 27. september sem hefst klukkan 18:00.
Hjartadagurinn
Sjálfur Hjartadagurinn er haldinn á Hálsatorgi í Kópavogi, beint á móti Salnum þann 30. september.
Fjölskyldan og samfélagið
Á hverju ári hefur Alþjóðlegi hjartadagurinn ákveðið þema og í ár er það fjölskyldan og samfélagið sem er ekki að ástæðulausu því það eru yfir 155 milljónir barna of þung eða of feit í heiminum. Með þema dagsins er líka lögð áhersla á að það er sameiginlegt verkefni hornsteina samfélagsins svo sem fjölskyldunnar, skólanna, vinnustaða og félagasamtaka að vinna saman að að því að ala upp heilbrigða einstaklinga sem eiga ekki á hættu að þróa með sér hjartasjúkdóm á fullorðinsárum, sjúkdóm sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með heilbrigðum lífsháttum strax í bernsku.

27. september | Ráðstefna í Salnum Kópavogi
- Ráðstefna verður haldin fyrir almenning í Salnum fimmtudaginn 27. september þar sem ýmsir sérfræðingar halda erindi um helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma.
- Ráðstefnan hefst klukkan 18:00 og er þátttaka ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir.
30. september | Alþjóðlegi hjartadagurinn, Hálsatorgi Kópavogi
11.00 Hjartadagshlaupið ( 3, 5 og 10 km) | Ræst verður í 3 km hlaupið frá Hálsatorgi klukkan 10:50 en klukkan 11:00 í 5 og 10 km. Í 5 og 10 km er ræst frá Bókasafni Kópavogs á Hálsatorgi. Nánari upplýsingar og skráning í hlaupið er hér.
11:10 Hjartagangan | Gengið verður um Kópavog undir leiðsögn.
11:30 Hjartahreysti-þrautabraut | Fyrir unglinga 12-16 ára á Hálsatorgi
Fljótasta stelpan og fljótasti strákurinn fá i-pod í verðlaun. Einnig verða dregin út verðlaun fyrir alla sem taka þátt
13:00 Skemmtidagskrá á Hálsatorgi
- Sveppi kynnir
- Hara systur syngja
- Kristjana Skúladóttir syngur fyrir börnin lög af plötunni Obbosí
- Verðlaunaafhending fyrir Hjartadagshlaupið
- Leikarar úr söngleiknum Gretti koma fram
- Hoppukastalar fyrir yngstu börnin á Hálsatorgi
Stöndum saman og tökum þátt í Alþjóðlega hjartadeginum.