• Mikilvægt er að reyna að takmarka frekara tjón eins og kostur er, til dæmis að reyna að stöðva vatnsleka með því að skrúfa fyrir inntak vatns. Gætið þó fyrst og fremst að ykkar eigin öryggi.
• Hægt er að hafa samband við Tjónavakt Sjóvá utan opnunartíma í síma 4402424.
• Ef um neyðartilvik er að ræða og mikið liggur við hringdu í 112.
• Við ráðleggjum þér að tilkynna tjónið eins fljótt og mögulegt er. Í tilkynningarferlinu er húsfélagið skráð sem tryggingataki og því nauðsynlegt að vera með kennitölu húsfélagsins þegar tjónið er tilkynnt.
• Vinsamlegast athugaðu hvort þú hafir skráð réttan tryggingataka í tilkynninguna. Algengt er að fasteignatrygging í fjölbýlishúsum sé skráð á kennitölu húsfélags sem gæti jafnvel verið tryggt hjá öðru tryggingafélagi.
• Ef þú nærð ekki að skrá tjónið hafðu samband við okkur á netspjalli, í síma 4402000 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið tjonaskodun@sjova.is og við aðstoðum þig.
- Einstaklingar ættu að geta nálgast kennitöluna hjá stjórn húsfélagsins. Einnig er hægt að fletta húsfélaginu upp hjá Fyrirtækjaskrá með því að skrifa nafn húsfélagsins í leitardálkinn „Nafn“.
- Ef þig vantar aðstoð við að finna kennitölu húsfélagsins getur þú einnig haft samband við okkur á netspjalli, í síma 4402424 eða sent tölvupóst á netfangið tjonaskodun@sjova.is.
• Þegar tjón hefur verið tilkynnt fer málið í vinnslu hjá tjónadeild og við sendum þér tölvupóst þar sem farið er yfir næstu skref.
• Ef þörf er á að skoða tjónið munum við hafa samband, bóka tjónaskoðun og í framhaldi komum við á staðinn eða hringjum í þig með myndsímtali í gegnum Innsýn Sjóvá.
• Ef nauðsynlegt þykir að bregðast við tjóni strax, hafðu þá samband við okkur á netpjalli eða í síma 440 2000 og við aðstoðum þig.
• Utan opnunartíma bendum við á Tjónavakt Sjóvá í síma 4402424.