Við leitum að jákvæðum og reynslumiklum hugbúnaðarsérfræðingi í vefteymið okkar. Í boði er áhugavert starf sem felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum á sviði hugbúnaðarþróunar og reksturs upplýsingakerfa
Starfið felur í sér:
Við leitum að einstaklingi með:
Hjá upplýsingatæknideild Sjóvá starfar öflugur og samhentur hópur að fjölbreyttum upplýsingatækniverkefnum og hugbúnaðarþróun sem miða að því að bæta þjónustuupplifun okkar viðskiptavina. Upplýsingatækni spilar stórt hlutverk í stefnumótandi verkefnum félagsins og því spennandi tímar framundan. Upplýsingatæknideild fylgir Agile aðferðafræðinni og beitir Scrum eða Kanban aðferðum við gerð hugbúnaðar.
Vinnustaðamenning okkar hjá Sjóvá er jákvæð, árangursdrifin og fjölskylduvæn og leggur starfsfólk sig fram um að veita viðskiptavinum afburðaþjónustu. Við erum efst tryggingafélaga í Íslensku ánægjuvoginni og kannanir sýna að starfsánægja hjá okkur er með því mesta sem gerist hérlendis.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ingibjörn Pétursson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar, ingibjorn.petursson@sjova.is. Umsóknarfrestur er til og með 18. júní.