Rétt tryggingavernd þarf að taka mið af búgrein, umfangi rekstrarins og þeim verðmætum sem búið byggir á. Huga þarf að búfé, fóðri, fasteignum, vélum og tækjum, ökutækjum og fólkinu sem heldur rekstrinum gangandi.

Ráðgjafar okkar aðstoða þig við að fara yfir þarfir búsins, meta áhættuna og velja tryggingavernd sem hentar þínum rekstri.

Öruggari rekstur með réttri tryggingavernd

Lausafjártrygging

Lausafjártrygging fyrir bændur er góð trygging fyrir búfé og  fóður.  Vélar,  tæki  og annað  lausafé  sem tilheyrir búrekstrinum er tryggt fyrir bruna-, vatns- og innbrotstjónum í hefðbundinni eignatryggingu lausafjár.  Mjaltakerfi og annan sérhæfðan búnaða getur verið ráðlegt að tryggja í véla- og tækjatryggingu.

Kæli- og frystivörutrygging

Kúabændur og þau sem eru að vinna matvæli heima á býli geta keypt þessa tryggingu sem greiðir bætur ef tjón verður vegna þess að kælivélar bila og matvæli í kælum, frystum eða mjólkurtönkum skemmast af þeim sökum.

Rekstrarstöðvunartrygging

Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar

Tryggingar vinnuvéla og ökutækja

Líf- og heilsutryggingar

Eru börnin örugglega tryggð?

Börn taka oft þátt í daglegum störfum á búinu. Barnatrygging getur veitt fjárhagslega vernd ef barn verður fyrir alvarlegu slysi eða veikindum og meðal annars komið til móts við framtíðartekjutap barns, tekjumissi foreldra eða ófyrirséðan kostnað.

Verkfæri fyrir bændur

Verðmat búfjár 

Skoðaðu leiðbeinandi viðmið um verðmat helstu búfjártegunda. Mikilvægt er að yfirfara verðmæti reglulega og taka sérstakt tillit til verðmætari gripa og annarra aðstæðna sem geta haft áhrif á raunverulegt verðmæti. 

Yfirferð á tryggingavernd búsins

Nýjar vélar, breytingar á bústofni og framkvæmdir geta haft áhrif á tryggingaþörfina. Við hjálpum þér að fara yfir stöðuna og skoða hvort tryggingaverndin endurspegli reksturinn eins og hann er í dag.

Forvarnir fyrir bændur

Forvarnagátlisti fyrir búið

Algengar spurningar

Næsta skref

Tilkynna tjón