
Viðskiptavinum okkar í vildarþjónustunni Stofni standa til boða ýmis tilboð og fríðindi.
Í Sjóvá appinu geturðu sótt staðfestingu á Stofnaðild til að nýta tilboðin í verslunum og fundið afsláttarkóða til að nota í vefverslunum.
20% afsláttur af öllum bílstólum
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu. Þar finnur þú líka afsláttarkóða til að nota í vefverslun AB varahluta.
20% afsláttur af keyptum Axkid bílstólum
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu. Þar finnur þú líka afsláttarkóða til að nota í vefverslun Bílanaust.
30% afsláttur af leigðum Axkid bílstólum
Þú finnur nánari upplýsingar um tilboðið og hvernig það er virkjað í Sjóvá appinu.
20% afsláttur af bílstólum
Til að nýta afsláttinn í versluninni sækir þú staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu.
10% afsláttur af öllum bílstólum
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu. Þar finnur þú líka afsláttarkóða til að nota í vefverslun Nine Kids.
Ólafur Gíslason ehf (ÓGER) Eldvarnamiðstöðin
20% afsláttur af öryggisvörum fyrir heimilið, s.s. reykskynjurum, slökkvitækjum og fleiru. Þú finnur afsláttarkóða í Sjóvá appinu til að nota í netverslun ÓGER.
Fífa
15% afsláttur af Clippasafe öryggisvörum. Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu.
Akstursvernd
20% afsláttur af Helite öryggisvestum.
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu. Þar finnur þú líka afsláttarkóða til að nota í vefverslun Akstursverndar.
Brokk
20% afsláttur af öryggisvestum með loftpúðum.
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu. Þar finnur þú líka afsláttarkóða til að nota í vefverslun Brokk.
Nesdekk
10% afsláttur af Toyo dekkjum
15% afsláttur af umfelgun við dekkjakaup.
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu.
MAX1 bílavaktin
10% afsláttur af dekkjum á föstu verði (ekki afsláttur af tilboðsverði)
15% afsláttur af umfelgun við dekkjakaup
Flutning um allt land með Flytjanda fyrir 1.500 kr á hvert dekk (2.500 kr. fyrir stór jeppadekk)
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu.
Brimborg – Akureyri
10% afsláttur af völdum dekkjum
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu.
Athugið að Sjóvá ber ekki ábyrgð á vörum eða vinnu verkstæðanna.
Hertz
20% afsláttur af bílaleigubíl innanlands.
Í Sjóvá appinu finnur þú afsláttarkóða sem þú notar til að virkja tilboðið á Hertz.is eða í gegnum síma.
Allt að 15% afsláttur af bílaleigum erlendis. Afslátturinn er misjafn eftir löndum og árstíma.
Í Sjóvá appinu finnur þú afsláttarkóða sem þú notar til að virkja tilboðið á Hertz.com.
AB varahlutir
15% afsláttur af varahlutum og öðrum vörum í verslun
Til að nýta afsláttinn í versluninni þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu. Þar finnur þú líka afsláttarkóða til að nota í vefverslun AB varahluta.
Í Sjóvá appinu birtast tímabundnir afslættir til viðskiptavina í Stofni. Til að nýta þá afslætti þarf að sækja Sjóvá appið og smella á „Fríðindi“.
2 fyrir 1 af hverjum keyptum miða á sumarsýningu Leikhópsins Lottu, hvar sem er á landinu. Miðaverð á sýninguna er 4.900 kr., frítt er fyrir 2ja ára og yngri.
Til að nýta afsláttinn þarftu að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu og sýna í miðasölunni hjá Leikhópnum Lottu. Þú getur einnig keypt miða fyrirfram á tix.is, sýnt staðfestinguna á Stofnaðild í miðasölunni og fengið þá annan miða frítt.
Ef þú ert í Stofni færðu 10% afslátt af eftirfarandi tryggingum:
Þegar við greiðum meira en 200.000 kr. úr ábyrgðartryggingu ökutækis eða slysatryggingu ökumanns eða eiganda ( sem eru báðar innifaldar í ökutækjatryggingu) innheimtum við iðgjaldsauka, 32.000 kr., frá viðskiptavininum.
Ef þú ert í Stofni greiðir þú hins vegar ekki iðgjaldsauka í tilfellum sem þessum.
Ef þú ert í Stofni getur þú valið um að fá greiddan afnotamissi (5.500 kr á dag) eða fá bílaleigubíl í allt að viku ef skemmdir á einkabílnum þínum eru bættar úr kaskótryggingu.
Viðskiptavinir okkar sem eru tjónlausir geta fengið endurgreiðslu einu sinni á ári. Þú getur einnig valið að fá endurgreiðsluna í formi Vildarpunkta Icelandair.
Viðskiptavinir okkar í Stofni geta fengið ókeypis vegaaðstoð víða um land, til dæmis ef það springur á dekki, bíllinn verður bensínlaus eða rafgeymirinn straumlaus.