
Viðskiptavinir okkar sem eru tjónlausir geta fengið Stofnendurgreiðslu einu sinni á ári. Hægt er að stækka endurgreiðsluna með því að fá hana í formi Vildarpunkta Icelandair.
Dæmi: Fyrir hverjar 15.000 kr. í Stofnendurgreiðslu fást 25.000 Vildarpunktar Icelandair. Ekkert lágmark er á þeirri fjárhæð sem hægt er að skipta í Vildarpunkta. Fjöldi Vildarpunkta sem viðskiptavinur fær fyrir sína Stofnendurgreiðslu miðast við upphæð endurgreiðslu hvers og eins. Að auki fá viðskiptavinir sem velja endurgreiðslu í formi Vildarpunkta Icelandair sértilboð hjá Icelandair sem öðrum standa ekki til boða*.
Nánar um Vildarpunkta
* Um er að ræða tvö sértilboð á flugferðum á ári sem eru send í tölvupósti til viðskiptavina í Stofni.
Þú getur ráðstafað endurgreiðslunni í Sjóvá appinu eða á Mitt Sjóvá eftir að þú færð SMS eða tölvupóst um að endurgreiðslan bíði þín.
Hægt er að ráðstafa Stofnendurgreiðslunni í Vildarpunkta Icelandair í 7 daga eftir að tilkynning um endurgreiðslu berst til þín. Tilkynning berst til vátryggingartaka Heimilistryggingar í tölvupósti og sms-i. Þá er á auðveldan hátt hægt að velja hvort endurgreiðslan er lögð strax inn á bankareikning vátryggingartaka eða velja að fá endurgreiðsluna greidda í formi Vildarpunkta Icelandair. Ef þú gerir ekkert í 7 daga frá því að tilkynningin berst verður Stofnendurgreiðslan sjálfkrafa lögð inn á bankareikninginn þinn næsta virka dag að þeim tíma liðnum.
Vildarpunktar Icelandair gilda í allt að 4 ár skv. skilmálum Icelandair Saga Club.
Allar nánari upplýsingar um Vildarpunkta Icelandair má nálgast á vefsíðu Icelandair.
Stofnendurgreiðslan er 10% af iðgjöldum trygginganna sem taldar eru upp hér fyrir neðan. Endurgreiðsla reiknast ekki af opinberum gjöldum sem greidd eru samhliða iðgjöldum trygginganna.
Athugið að endurgreiðsla reiknast ekki af líf-, sjúkdóma- og barnatryggingum.
Ef þú ert með allar tryggingarnar þínar á endurnýjun á sama degi (hefur valið einn gjalddaga) færðu endurgreiðsluna mánuði eftir endurnýjun trygginganna. Ef þú hefur valið að dreifa endurnýjun trygginganna yfir árið færðu endurgreiðsluna í febrúar á ári hverju.*
Þú færð tilkynningu í tölvupósti og sms-i þegar þú átt rétt á Stofnendurgreiðslu. Þá getur þú með einföldum hætti valið í Sjóvá appinu eða á Mitt Sjóvá hvort þú vilt fá endurgreiðsluna greidda inn á bankareikninginn þinn eða fá hana í formi Vildarpunkta Icelandair.
Ef þú gerir ekkert í 7 daga frá því að tilkynningin berst verður Stofnendurgreiðslan sjálfkrafa lögð inn á bankareikninginn þinn næsta virka dag.
*Endurgreiðslutímabilið er þá vegna iðgjalda sem tilheyra árinu á undan. Iðgjald er greitt af hverri tryggingu fyrir það tímabil sem hún gildir og getur endurgreiðslutímabilið því verið annað en gildistími trygginganna.
Endurgreiðslan er reiknuð af þeim iðgjöldum sem tilheyra endurgreiðslutímabili trygginga í Stofni.
Hafi iðgjöld verið endurgreidd á tímabilinu næst á undan endurgreiðslutímabilinu, t.d. vegna niðurfellingar tryggingar, þá eru þau dregin frá iðgjöldunum sem endurgreiðslan reiknast af.
Við sendum þér tilkynningu í Sjóvá appið, í sms-i og tölvupósti þegar þú átt rétt á Stofnendurgreiðslu og hún er tilbúin til útgreiðslu.
Hafir þú ekki látið okkur fá reikningsupplýsingarnar þínar sendum við þér skilaboð til að láta vita að endurgreiðslan bíði þín inni á Mitt Sjóvá, þar sem þú getur valið með einföldum hætti á milli endurgreiðslu inn á bankareikning eða Vildarpunkta Icelandair. Eingöngu er hægt að greiða inn á reikning þess sem skráður er fyrir Heimilistryggingunni, hvort sem um bankareikning eða Saga Club reikning að ræða.
Stofnendurgreiðslan er 10% af iðgjöldum trygginganna sem taldar eru upp hér fyrir neðan.
Endurgreiðsla reiknast ekki af opinberum gjöldum sem greidd eru samhliða iðgjöldum trygginganna.
Athugið að endurgreiðsla reiknast ekki af líf-, sjúkdóma- og barnatryggingum.