
Heimilistrygging er trygging fyrir þig, fjölskylduna þína og innbúið ykkar. Við mælum með Heimilistryggingu fyrir öll sem halda heimili, bæði einstaklinga og fjölskyldur, því það getur verið mikið fjárhagslegt áfall ef innbúið verður fyrir tjóni.
Í slysatryggingu í frítíma, felst líka mikilvæg vernd fyrir þig og fjölskylduna. Þú getur aðlagað heimilistrygginguna að þínum þörfum út frá lífsstíl og áhugamálum, fjölskyldustærð og húsnæði.
Heimilistrygging er samsett trygging sem þú getur sniðið að þínum þörfum og þannig haft áhrif á verðið.
Ef þú ert nú þegar með Fjölskylduvernd getur þú fært þig yfir í Heimilistryggingu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og fylla út formið.
Eigin áhætta er upphæðin sem þú greiðir ef tjón verður.
Veldu á milli 35.000 kr., 65.000 kr. eða 95.000 kr. eigin áhættu* og hafðu áhrif á hvað þín heimilistrygging kostar. Verðið getur lækkað allt að 20% ef þú velur hærri eigin áhættu.
*Eigin áhætta uppfærist samkvæmt vísitölu.
Tryggingin gildir á ferðalagi erlendis í allt að 92 daga samfellt og tryggir fjölskylduna fyrir ýmsum kostnaði sem getur fylgt slysum eða veikindum sem upp koma á ferðalögum.
Ef Ferðavernd er ekki valin lækkar verð Heimilistryggingarinnar. Við mælum með að þú kannir hvort þú sért með góða ferðatryggingu í gegnum greiðslukort áður en þú ákveður að sleppa Ferðavernd.
Hægt er að kaupa Heimilistrygginu með Slysatryggingu í frítíma eða án.
Við mælum þó alltaf með slysatryggingu í frítíma. Ef hún fylgir með getur þú valið um hefðbundnar fjárhæðir eða hærri fjárhæðir.
Hvað er tryggt? | Hvað er ekki tryggt? |
|---|---|
| Innbústrygging bætir tjón á innbúi: | Innbústrygging bætir ekki tjón vegna: |
|
|
| Ábyrgðartrygging bætir kostnað: | Ábyrgðartrygging bætir ekki kostnað sem fellur á þig: |
|
|
| Slysatrygging í frítíma greiðir bætur vegna: | Slysatrygging í frítíma greiðir ekki bætur vegna: |
|
|
| Trygging fyrir sjúkrahúslegu greiðir bætur: | Trygging fyrir sjúkrahúslegu greiðir ekki bætur vegna: |
|
|
| Áfallahjálp greiðir bætur: | Áfallahjálp bætir ekki: |
|
|
| Réttaraðstoðartrygging greiðir málskostnað: | Réttaraðstoðartrygging greiðir ekki málskostnað: |
|
|
| Ferðavernd (valkvæð trygging) bætir: | Ferðavernd bætir ekki: |
|
|
Tryggingin bætir ekki tjón af völdum náttúruhamfara eða tjón sem orsakast af stríði, hryðjuverkum, mengun eða viðlíka atburðum.
Innbústrygging gildir á heimili þínu, sem skráð er á vátryggingaskírteinið.
Ábyrgðatrygging gildir á Íslandi og á ferðalagi erlendis í allt að þrjá mánuði.
Slysatrygging í frítíma, Trygging vegna sjúkrahúslegu og Áfallahjálp gilda hvar sem er í heiminum.
Réttaraðstoðartrygging gildir á Íslandi.
Ferðatrygging gildir á ferðalagi erlendis í allt að 92 samfellda daga frá upphafi ferðar og aftur til Íslands.
Þú þarft að tilkynna tjón eins fljótt og kostur er og ekki síðar en innan árs frá tjónsdegi.
Þú þarft að sjá til þess að allar upplýsingar á vátryggingarskírteininu séu réttar.
Þú þarft að tilkynna okkur um breytingar á heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.
Þér er skylt að fara eftir varúðarreglum í skilmálum, t.d. að dyr, gluggar og önnur op inn á vátryggingarstað séu tryggilega læst og lyklar geymdir þannig að óviðkomandi hafi ekki aðgang að þeim.
Iðgjaldið á að greiða á gjalddaga. Við útgáfu eða endurnýjun tryggingarinnar stofnast rafræn krafa í netbanka. Þú átt kost á að dreifa greiðslum iðgjaldsins með:
Boðgreiðslu, þar sem iðgjaldið er skuldfært mánaðarlega af kredit- eða debetkorti.
Beingreiðslu, þar sem skuldfært er mánaðarlega af bankareikningi.
Tryggingin tekur gildi frá samþykkt tilboðs og endurnýjast árlega þar til henni er sagt upp.
Einstaklingar og fyrirtæki með færri en fimm stöðugildi geta sagt tryggingum upp hvenær sem er og falla þær þá niður í lok þarnæsta mánaðar frá því uppsögnin berst. Önnur fyrirtæki geta sagt tryggingum upp með mánaðarfyrirvara fyrir lok tryggingatímabilsins.
Uppsögn þarf að vera skrifleg, t.d. með rafrænni undirskrift.
Ef þú ert með tryggingar hjá okkur sérðu skilmála þeirra á Mitt Sjóvá
Hægt er að velja um tvær leiðir: Hefðbundnar fjárhæðir og hærri fjárhæðir.
Fjárhæðir miðast við mars 2026 og uppfærast samkvæmt vísitölu.
Bótaflokkur | Hefðbundnar fjárhæðir | Hærri fjárhæðir |
|---|---|---|
Dánarbætur | 10.985.800 kr. | 13.183.000 kr. |
Örorkubætur, grunnfjárhæð | 12.749.400 kr. | 20.000.600 kr. |
Örorkubætur vegna 100% örorku | 41.435.530 kr. | 65.001.870 kr. |
Sjúkrakostnaður innanlands | 302.000 kr. | 402.700 kr. |
Beinbrota-og liðbandavernd | 75.500 kr. | 100.675 kr. |
Tannbrot | 1.275.400 kr. | 2.299.600 kr. |
Tannbrot - í hverju tjóni | 829.920 kr. | 1.500.241 kr. |
Breytingar-og hjálpartækjakostnaður | 1.330.000 kr. | 1.995.000 kr. |
Hefðbundnar fjárhæðir
Við mælum með hefðbundnum fjárhæðum ef þú vilt góða frítímaslysatryggingu fyrir þig og fjölskylduna.
Hærri fjárhæðir
Ef þú vilt öflugri frítímaslysatryggingu fyrir þig og fjölskylduna mælum við með hærri fjárhæðum.
Verðmæta hluti ætti alltaf að tryggja sérstaklega. Það á til dæmis við um dýran tómstundarbúnað eins og reiðhjól, golfbúnað og myndavélar, verðmæt málverk og skartgripi. Þetta er vegna þess að heimilistrygging tryggir suma hluti upp að ákveðnu hámarki, sem dæmi um það má nefna, reiðhjól, úr og skartgripi. Ef þú átt verðmæta hluti sem eru að staðaldri geymdir utan heimilis þá þarf einnig að tryggja þá sérstaklega. Hlutir eins og málverk, tölvur, myndavélar, hljómtæki, sjónvörp og slíkt eru til dæmis ekki tryggðir fyrir innbrotum og skemmdarverkum séu þau geymd í geymslum utan íbúðar, bílskúrum eða bílum. Þú getur alltaf haft samband við okkur til að tryggja þessa hluti, með því að hringja í 440 2000, heyra í okkur á netspjallinu eða senda tölvupóst á sjova@sjova.is.
Nánari upplýsingar um skilmála kortatrygginga er að finna hjá þínum viðskiptabanka.