Gæludýrin okkar eru hluti af fjölskyldunni og við viljum að þeim líði sem best. Þess vegna hafa Sjóvá og Dýrheimar tekið höndum saman um að efla fræðslu og forvarnir fyrir gæludýraeigendur.
Með samstarfinu fá viðskiptavinir Sjóvá 25% afslátt af Stöðumati í Heilsutékki Dýrheima auk 25% afsláttar af netnámskeiðum í Fræðslusetri Dýrheima.
Hjá Dýrheimum geta gæludýraeigendur sótt sér fræðslu sem nýtist í daglegu lífi með dýrinu. Samstarfið nær meðal annars til fræðslu um heilsu, næringu, þjálfun, hegðun, ofnæmi og aðrar forvarnir.
Markmiðið með samstarfinu er að auka þekkingu gæludýraeigenda og stuðla að betri heilsu, velferð og lífsgæðum gæludýra.
Við hjá Sjóvá erum ánægð með að hefja samstarf við Dýrheima og hlökkum til að bjóða viðskiptavinum okkar upp á aukna fræðslu og fríðindi sem styðja við betri umönnun fyrir ferfættu fjölskyldumeðlimina.