Sjóvá býður Meðgöngutryggingu í fyrsta sinn á Íslandi

Konur geta nú tryggt sig á meðgöngu, í fyrsta sinn á Íslandi. Sjóvá kynnir í dag, á kvennréttindadaginn 19. júní, tryggingavernd sem er sérstaklega hönnuð fyrir barnshafandi konur.

Meðgöngutryggingu Sjóvá er ætlað að veita verðandi foreldrum hugarró og fjárhagslegan stuðning ef eitthvað kemur upp á. Hún tryggir bæði verðandi móður og börn í móðurkviði á meðgöngu og í fæðingu og tryggir einnig barnið þar til það verður eins mánaðar gamalt. Meðgöngutryggingin nær þannig yfir tímabil sem aðrar tryggingar gera ekki.

Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem hægt er að tryggja móður og barn á þessum dýrmæta tíma en tryggingin byggir á norræni fyrirmynd.

Sjá nánar um Meðgöngutryggingu


Umfjöllun um Meðgöngutryggingu í fjölmiðlum:

Sjóvá býður nú upp á Meðgöngutryggingu - frétt á mbl.is

Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn - frétt á visir.is

Söguleg trygging lítur dagsins ljós - viðtal í Bítinu á Bylgjunni