Sjóvá er vottað samkvæmt ISO 27001:2022 staðlinum um upplýsingaöryggi og uppfyllir því mjög strangar kröfur um meðferð upplýsinga.Um er að ræða alþjóðlegan staðal sem hjálpar fyrirtækjum að innleiða, viðhalda og endurbæta upplýsingaöryggi. Óháður úttektaraðili framkvæmir úttektir árlega hjá okkur og staðfestir vottunina.
Sjóvá er með jafnlaunavottun samkvæmt ÍST85:2012 staðlinum. Við höfum verið með jafnlaunavottun frá árinu 2014, fyrst frá VR og síðan frá Velferðarráðuneytinu (jafnlaunamerki), frá árinu 2017.Jafnlaunavottunin staðfestir að við séum með virkt jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur reglugerðar um jafnlaunavottun fyrirtækja og stofnana nr. 1030/2017 og lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 um vottanir á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana.Óháður úttektaraðili framkvæmir úttektir á jafnlaunakerfi okkar árlega og staðfestir jafnlaunavottunina.