Notendur spjallmennis og netspjalls eru beðnir um að senda aldrei viðkvæmar upplýsingar í gegnum netspjallið, eins og lykilorð, kortanúmer, upplýsingar um heilsufar eða fjárhagslegar upplýsingar. Ef notandi ákveður engu að síður að deila slíkum upplýsingum í spjallinu, er litið svo á að hann hafi veitt samþykki fyrir vinnslu og miðlun þeirra. Allar aðgerðir í netspjallinu eru á ábyrgð notenda þess.
Notandi samþykkir að niðurstöðu auðkenningar sé miðlað til þriðja aðila. Notendum er ráðlagt að tryggja að þeir yfirgefi ekki netspjall sem er opið og óvarið. Notendur eru hvattir til að kynna sér persónuverndarstefnu Sjóvár sem er aðgengileg hér.
Sjóvá ber hvorki ábyrgð á tjóni sem má rekja, beint eða óbeint, til notkunar á netspjalli eða spjallmenni né þess að netspjall eða spjallmenni eru óaðgengileg, hvort sem það er tímabundið eða varanlega.
Spjallmenni Sjóvár er knúið áfram af gervigreindartækni í þeim tilgangi að bæta þjónustu við notendur með auknum hraða auk þess að bæta þjónustu utan almenns opnunartíma. Gervigreindartækni er í sífelldri þróun og því geta gæði svara spjallmennis verið misjöfn og jafnvel röng. Svör spjallmennisins eru almenns eðlis og ekki einstaklingsmiðuð. Þau hafa því ekki réttaráhrif að því er notandann sjálfan varðar.
Upplýsingar sem notandi deilir í samskiptum í netspjalli og við spjallmennið eru vistuð í gagnagrunni félagsins. Gögnin eru meðal annars nýtt til að bæta þjónustuna, tryggja áreiðanleika og rekjanleika upplýsinga og viðskiptafyrirmæla, tryggja öryggi starfsfólks og tryggja sönnun er varðar vátryggingastarfsemina, þjálfa spjallmenni Sjóvár og bæta svör þess.
Spjallmenni Sjóvár er keyrt á lausn frá Boost.ai, sem er undirvinnsluaðili þar sem Advania er vinnsluaðili fyrir Sjóvá. Boost.ai styðst við gervigreindarmódel frá OpenAI sem keyrir í Azure umhverfi hjá Sjóvá. Samskiptum er ekki miðlað til OpenAI og eru ekki nýtt við þróun eða þjálfun á gervigreindarmódelum OpenAI.