Hér finnur þú leiðbeiningar um hvernig þú staðfestir beingreiðslusamning rafrænt á Mitt Sjóvá.
Þegar þú skráir þig í beingreiðslur færðu sendan tölvupóst þar sem við biðjum þig að staðfesta samninginn. Smelltu á hlekkinn í tölvupóstinum til að opna Mitt Sjóvá.
Það eru tvær leiðir til innskráningar, með rafrænum skilríkjum eða með kennitölu og lykilorði.
Ef þú ert með rafræn skilríki er fljótlegast að velja þá leið.
Ef þú velur að skrá þig inn með kennitölu og lykilorði smellir þú á flipann „Notendanafn“. Næst slærð þú inn kennitöluna þína og lykilorð. Ef þú manst ekki lykilorðið getur þú endurstillt það í gegnum tölvupóst, SMS eða í netbanka.
Þegar innskráningu er lokið ætti staðfestingarsíðan að birtast. Ef hún gerir það ekki smellir þú á „Staðfestingar“ í valmyndinni. Samningurinn birtist í töflu yfir skjöl sem á eftir að samþykkja, þar smellir þú á „Opna samning“. Við það opnast samningurinn, því næst ýtir þú á „Samþykkja“, við það opnast samþykktargluggi og þegar þú hefur staðfest hann er samþykktarferlinu lokið og þú getur skráð þig út af Mitt Sjóvá.