
Viðskiptavinir okkar í Stofni fá 2 fyrir 1 af hverjum keyptum miða á sumarsýningu leikhópsins Lottu, hvar sem er á landinu. Miðaverð á sýninguna er 4.900 kr., frítt er fyrir 2ja ára og yngri. Það eina sem þú þarft að gera er að sýna staðfestingu á Stofnaðild sem þú sækir í Sjóvá appinu.
Sumarsýning Leikhópsins Lottu árið 2026 er söngleikurinn Litaland.
Leikhópurinn Lotta er löngu orðinn þekktur fyrir fjörugar og bráðskemmtilegar sýningar þar sem hinar og þessar ævintýrapersónur koma við sögu. Í ár fagnar Leikhópurinn 20 ára afmæli og af því tilefni setur hópurinn aftur upp eitt af sínum uppáhalds ævintýrum um Litaland.
Sýningartíminn er klukkustund og þar sem sýningarnar eru utandyra mælum við með að þið grípið með ykkur teppi til að sitja á, klæðið ykkur eftir veðri og hafið með ykkur nesti.
Miða er hægt að kaupa fyrirfram á tix.is eða í miðasölunni á staðnum.
Viðskiptavinir okkar í Stofni fá 2 fyrir 1 af hverjum keyptum miða á sumarsýningu Leikhópsins Lottu, hvar sem er á landinu.
Til að nýta afsláttinn þarftu bara að sækja staðfestingu á Stofnaðild í Sjóvá appinu og sýna í miðasölunni hjá Leikhópnum Lottu. Þú getur einnig keypt miða fyrirfram á tix.is, sýnt staðfestinguna á Stofnaðild í miðasölunni og fengið þá annan miða frítt.
Frímiði fylgir þá hverjum keyptum miða, þannig að ef þú kaupir t.d. 3 miða færðu 3 frímiða, o.s.frv.
Miðaverð á sýninguna er 4.900 kr., frítt er fyrir 2ja ára og yngri.
Þú finnur ferðaáætlun hópsins fyrir sumarið á leikhopurinnlotta.is og á Facebook-síðu leikhópsins.