1. Almennt
Þessir skilmálar gilda um alla þátttöku í herferðinni „Ánægja er“, þar með talið innsendingu texta á vefsíðunni anaegjaer.is (vefsíða), og alla notkun, deilingu eða aðra dreifingu þess efnis.
Rekstraraðili herferðarinnar er Sjóvá-Almennar tryggingar hf. („Sjóvá“).
Með því að senda inn efni samþykkir þú þessa skilmála í heild sinni.
2. Tilgangur herferðarinnar
Tilgangur herferðarinnar er markaðssetning, auk þess að vekja athygli á geðheilbrigði og efla jákvæð hughrif í samfélaginu.
3. Innsending efnis
Með innsendingu staðfestir þú að:
- Efnið sé þitt eigið eða að þú hafir fullan rétt til að deila því.
- Efnið brjóti ekki gegn lögum, góðum siðum eða réttindum þriðja aðila.
- Efnið innihaldi ekki persónuupplýsingar um þriðja aðila.
- Efnið innihaldi ekki viðkvæmar persónupplýsingar um þátttakendur.
- Fyrir hverja innsendingu verður veittur styrkur að fjárhæð 200 kr. til Geðhjálpar, að hámarki 2.000.000 kr. samtals.
4. Notkun og birting efnis
Valdar innsendingar verða notaðar í kynningar- og auglýsingaskyni til að miðla boðskap herferðarinnar.
Með innsendingu veitir þú Sjóvá ótímabundið, endurgjaldslaust og óafturkallanlegt leyfi til að:
- Birta textainnsendingu ásamt nafni þínu eða því nafni sem þú gefur upp við innsendingu.
- Nota, birta, afrita, dreifa, aðlaga, stytta og breyta efninu.
Leyfið nær til notkunar í:
- Prentmiðlum
- Ljósvakamiðlum, þar með talið sjónvarpi, útvarpi og stafrænu efni
- Samfélagsmiðlum
- Umhverfisskiltum og strætóskýlum
- Öðrum miðlum, hvort sem þeir eru þekktir nú eða verða til síðar
5. Tímalengd
Leyfi til notkunar og birtingar efnis er ótímabundið og gildir frá því að efni er sent inn.
6. Afturköllun
Ekki er hægt að afturkalla leyfi fyrir notkun efnis sem þegar hefur verið sent inn eða birt.
7. Ritstjórn og val
Sjóvá áskilur sér rétt til að:
- Velja hvaða efni er birt eða notað.
- Birta efni í heild eða að hluta.
- Birta ekki efni án skýringa.
Innsending tryggir ekki birtingu.
8. Ábyrgð
Sjóvá ber ekki ábyrgð á:
- Texta sem þátttakendur senda inn og birtur er á á vegum Sjóvá eða dreift á eigin miðlum þátttakenda.
- Túlkun eða notkun þriðja aðila á efni sem birt er í tengslum við herferðina.
Þátttakandi ber fulla ábyrgð á því efni sem hann sendir inn.