
Í 5,6% verðbólguumhverfi hefur Sjóvá tekið ákvörðun um að hækka ekki verð á tryggingum heimilisbíla umfram 2,5% næstu 12 mánuði. Þetta er gert í takt við verðbólgumarkmið Seðlabankans til að stuðla að hjöðnun verðbólgu og auknum stöðugleika.
Ökutækjatryggingar eru að jafnaði ríflega helmingur af tryggingakostnaði heimila og snertir aðgerðin því stóran hluta af tryggingaútgjöldum heimilanna. Með þessu viljum við leggja okkar af mörkum til að ná verðbólgu niður, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að auknum stöðugleika.
„Hér þurfum við öll að leggjast á eitt“, segir Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá. „Með því að takmarka hækkanir við 2,5% næstu 12 mánuði er Sjóvá að sýna með skýrum og sýnilegum aðgerðum að við séum raunverulega að leggjast á árarnar til að stuðla að hjöðnun verðbólgu og efnahagslegum stöðugleika.“
Aðgerðin að takmarka vísitölutengdar hækkanir á iðgjöldum við 2,5% nær til ökutækjatrygginga á heimilisbílum hjá viðskiptavinum á einstaklingsmarkaði næstu 12 mánuði.
Tjón verða eftir sem áður bætt í samræmi við þróun verðlags og ákvæði vátryggingasamninga. Sjóvá vill einnig skora á viðskiptavini sína og birgja að leggjast á árarnar við þetta sameiginlega verkefni sem varðar samfélagið allt.