Í samstarfi við Lyfju á Akureyri býður Sjóvá þér og öðrum meðlimum fjölskyldu þinnar, 18 ára og eldri, upp á fría heilsufarsmælingu hjá Lyfju dagana 15. janúar til 13. febrúar.
Lyfja mun einnig bjóða upp á 10% afslátt af öllum vítamínum, bætiefnum og sjálfsprófum í framhaldi af mælingunni.
Heilsufarsmælingar Lyfju innifela mælingar á blóðþrýstingi, blóðsykri og mittismáli. Mikilvægt er að blóðsykursmæling sé gerð á fastandi maga.
Mælingarnar fara fram alla virka daga kl. 9-13 hjá Lyfju Akureyri, Glerárgötu 34.
Ekki þarf að bóka tíma, þú mætir einfaldlega bara og sýnir þessa síðu. Þú færð niðurstöður mælinganna strax á staðnum, þær eru bara ætlaðar þér og hvorki Lyfja né Sjóvá munu fá neinar upplýsingar um þær.
Við vonum að þessar mælingar geti nýst þér og þínum og óskum ykkur góðrar heilsu á nýja árinu.
Á vef Lyfju getur þú fundið ýmis konar fróðleik um heilsu og heilbrigði, eins og t.d. þessa grein um heilbrigðan lífsstíll fyrir betri heilsu og vellíðan.