Þú hefur fengið tölvupóst frá okkur um að við munum bæta tjónið á þínu ökutæki fyrirtækis þíns úr kaskótryggingu.
Hér má sjá næstu skref, svör við algengum spurningum og þá valmöguleika sem bjóðum á meðan ökutækið þitt er í viðgerð. Við biðjum þig að skoða eftirfarandi upplýsingar mjög vel.
Mikilvægt er að Sjóvá hafi samþykkt viðgerðarmat á ökutæki áður en það fer í viðgerð á verkstæði svo öruggt sé að Sjóvá ábyrgist greiðslu vegna viðgerðarkostnaðar.
Ef ökutækið var flutt óökufært af vettvangi mun tjónamatsmaður Sjóvá skoða ökutækið við fyrsta tækifæri og vera í sambandi við þig um framhaldið. Hafir þú ekki heyrt frá okkur innan tveggja virkra daga hafðu þá samband við ökutækjatjón í síma 440-2060.
Þegar viðgerð er lokið færðu reikning frá okkur vegna eigin áhættu. Ef iðgjöldin þín eru í greiðsludreifingu mun eigin áhættan dreifast með sama hætti og þú þarft ekki að gera neinar ráðstafanir.
Ef þú vilt greiða eigin áhættuna með öðrum hætti bendum við þér á að senda tölvupóst á innheimta@sjova.is eða hringja í síma 440-2277.
Við vekjum athygli á því að ef skemmdir á ökutækinu eru það miklar að Sjóvá kaupir ökutækið, þá þarf að gera upp iðgjald kaskótryggingarinnar, enda er verið að nýta trygginguna til fulls. Eftirstöðvar iðgjaldsins verða dregnar frá kaupverði ökutækisins og gæti því upphæðin sem lögð verður inn á bankareikning þinn orðið lægri en kaupverðið sem samið var um.
Ef þú hefur keypt Afnotamissisvernd með Kaskótryggingunni áttu rétt á bílaleigubíl á meðan á viðgerð stendur, í hámark 7 daga. Hafðu samband við okkur í síma 440-2060 eða sendu okkur tölvupóst á okutjon@sjova.is og við finnum bíl fyrir þig.
Ef ekki er hægt að útvega sambærilegan bílaleigubíl, getum við boðið þér bætur vegna afnotamissis sem nemur 10.000 kr. á dag, í hámark 7 daga.