Þú hefur fengið tölvupóst frá okkur vegna áreksturs og þar sem við teljum þig í rétti biðjum við þig að skoða eftirfarandi upplýsingar mjög vel.
Hér má sjá næstu skref, svör við algengum spurningum og þá valmöguleika sem bjóðum á meðan bifreið þín er í viðgerð.
Mikilvægt er að Sjóvá hafi samþykkt viðgerðarmat á bifreið áður en hún fer í viðgerð á verkstæði svo öruggt sé að Sjóvá ábyrgist greiðslu vegna viðgerðarkostnaðar.
Ef bifreiðin var flutt óökufær af vettvangi mun tjónamatsmaður Sjóvá skoða bifreiðina við fyrsta tækifæri og vera í sambandi við þig um framhaldið. Hafir þú ekki heyrt frá okkur innan tveggja virkra daga hafðu þá samband við ökutækjatjón í síma 440-2060.
Einstaklingar (eigendur/umráðamenn) sem lenda í tjóni geta valið milli tveggja valmöguleika, bílaleigubíl eða afnotamissi meðan á viðgerð bifreiðar stendur. Fyrirtæki eiga þó almennt ekki slíkan rétt vegna bifreiða sinna. Í öllum tilvikum er miðað við hefðbundinn viðgerðartíma sem að jafnaði er 5-10 dagar. Athuga skal að stundum getur þurft að bíða eftir varahlutum svo hægt sé að hefja eða halda áfram með viðgerð, og að gengið er út frá því að viðgerðartími fari ekki fram úr 30 dögum. Vinsamlegast hafðu samband við tjónamatsmenn okkar í síma 440-2060 eða á okutjon@sjova.is ef áætlað er að viðgerðarferlið taki lengri tíma.
Við greiðum þér 5.500 kr. fyrir hvern dag sem ökutækið er í viðgerð. Ef þú kýst þennan valmöguleika, hafðu þá samband við okkur á eða í síma 440-2060 þegar þú hefur sótt ökutækið úr viðgerð. Eftir að viðgerð er lokið getum við reiknað út upphæðina sem við leggjum svo inn á bankareikninginn þinn í kjölfarið.
Hér má finna lista yfir bílaleigur í samstarfi við Sjóvá. Þú getur haft beint samband við bílaleigu af þessum lista og pantað bíl. Í sumum tilvikum getur verkstæðið sem sér um viðgerðina útvegað þér bíl. Sjóvá greiðir fyrir bílaleigubíl í A-flokki. Við bendum á að við töku bílaleigubíls þarf að framvísa kreditkorti.
Framangreind niðurstaða Sjóvá byggir á fyrirliggjandi gögnum og er með þeim fyrirvara að ný gögn, álit Tjónanefndar vátryggingafélaganna, úrskurður Úrskurðarnefndar í vátryggingamálum eða dómur leiði ekki til annarrar niðurstöðu. Niðurstöðu félagsins er unnt að skjóta til Tjónanefndar vátryggingafélaganna og/eða Úrskurðarnefndar í vátryggingamálum. Sjá nánar hér.