Tjónagrunnur er sameiginlegur gagnagrunnur tryggingafélaga á Íslandi. Grunninum er ætlað að koma í veg fyrir tryggingasvik og er að norrænni fyrirmynd. Creditinfo er vinnsluaðili tjónagrunnsins en tryggingafélögin eru hvert um sig ábyrgðaraðili þeirra tjónaupplýsinga sem þau skrá í grunninn.
Öll skaðatjón sem eru tilkynnt til félaganna sem eiga aðild að grunninum eru skráð í hann og er viðskiptavinurinn upplýstur um skráninguna þegar hann tilkynnir tjónið og í skilmálum félagsins. Tjón sem falla undir líf- og sjúkdómatryggingar og tjón sem börn yngri en 15 ára verða fyrir eru ekki skráð í grunninn.
Upplýsingarnar sem má skrá í grunninn eru: nafn tryggingafélags, kennitala tjónþola, númer máls hjá félagi, tegund tryggingar, tegund tjóns, dagsetning tjóns, dagsetning skráningar í grunninn, staðsetning tjóns og einkvæmt númer hins tryggða s.s. skráningarnúmer ökutækis.
Óheimilt er að skrá frekari upplýsingar í tjónagrunninn, eins og einstök heilsufarsleg atriði í tengslum við líkamstjón.
Aðgangi að tjónagrunninnum er stýrt og hefur eingöngu það starfsfólk tryggingafélaga sem skráir tjón og vinnur að uppgjöri tjóna aðgang að upplýsingum í honum.
Hægt er að fá aðgang að yfirliti um uppflettingar um sig í grunninum í gegnum þjónustuvef Creditinfo. Ef þér er flett upp í grunninum færðu einnig tilkynningu um fyrstu uppflettingu frá Creditinfo.
Já, tjónagrunnur er rekinn í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, upphaflega með heimild frá Persónuvernd. Samkvæmt lögunum má m.a. vinna með persónuupplýsingar sé það nauðsynlegt til að gæta lögmætra hagsmuna.
Upplýsingum um þá sem eru skráðir í tjónagrunninn er haldið í lágmarki og er upplýsingum kerfisbundið eytt úr honum (í síðasta lagi 10 árum frá skráningu).