Sjóvá hefur ráðið Tinnu Molphy til að leiða Stefnumótun og viðskiptaþróun félagsins.
Tinna býr að yfir tuttugu ára reynslu á sviði samskipta, markaðsmála og fjárfestatengsla á íslenskum fjármálamarkaði og hjá leiðandi félögum í alþjóðlegum rekstri.
Hún kemur til Sjóvá frá Alvotech en var áður hjá Marel um átta ára skeið. Þar vann hún náið með stjórnendum að miðlun stefnu og samskipta við innri og ytri hagaðila og framsetningu lykilskilaboða til fjárfesta, fjölmiðla og starfsfólks, auk þess að styðja við stefnumótandi verkefni, umbreytingar og vaxtarverkefni á alþjóðlegum vettvangi.
Tinna starfaði hjá Landsbankanum og Íslandsbanka á árunum 2003 til 2017 á sviði markaðs- og kynningarmála, fjárfestatengsla og viðskiptatengsla við erlenda banka og lánshæfismatsfyrirtæki. Hún er með BA- og meistaragráðu í viðskiptafræði og japönsku frá Trinity College Dublin á Írlandi.
„Við erum mjög ánægð með að fá Tinnu til liðs við okkur. Hún kemur með víðtæka reynslu af stefnumótun, samskiptum og fjárfestatengslum, bæði af íslenskum fjármálamarkaði og frá alþjóðlegum rekstri. Sú reynsla og það nýja sjónarhorn sem hún hefur færir okkur aukna breidd í vegferð okkar að sækja fram í tryggingaþjónustu og efla sterka stöðu félagsins til framtíðar,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
„Ég er virkilega spennt að ganga til liðs við Sjóvá á þessum tímamótum. Hér er öflugt teymi með djúpa sérþekkingu á tryggingum, með sterka þjónustumenningu og skýra sýn á framtíðina. Tryggingamarkaðurinn er að þróast hratt og framundan eru spennandi tækifæri til að byggja áfram á sterkri stöðu Sjóvá, styðja við metnað félagsins um að eiga ánægðustu viðskiptavinina og efla verðmætasköpun til framtíðar,“ segir Tinna Molphy.
Við bjóðum Tinnu hjartanlega velkomna til starfa.