Sjóvá og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa endurnýjað styrktarsamning sinn til næstu 5 ára og halda þannig áfram farsælu samstarfi sem staðið hefur í meira en aldarfjórðung. Sjóvá hefur verið aðalstyrktaraðili Landsbjargar allt frá stofnun samtakanna árið 1999 og hefur á þeim tíma stutt fjölbreytt verkefni sem miða að því að efla björgunarstarf og auka öryggi landsmanna og ferðamanna. Samningurinn var undirritaður í dag á ráðstefnunni Björgun 2026 sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg stendur fyrir nú um helgina í Hörpu. Styrkurinn hljóðar upp 67,5 milljónir króna.
Samstarf Sjóvár og Landsbjargar hefur í gegnum tíðina náð til fjölmargra verkefna á sviði björgunarstarfs, slysavarna og fræðslu. Meðal þeirra eru kaup á fyrstu þremur nýju björgunarskipum Landsbjargar, sem Sjóvá styrkti um samtals 142,5 milljónir króna, þróun Safetravel-smáforritsins og stuðningur við Hálendisvakt björgunarsveitanna.
Þá hefur Sjóvá meðal annars stutt endurhönnun Björgvinsbelta, einu besta og fljótvirkasta öryggistækinu til að ná manni úr sjó, og uppsetningu þeirra á fjölförnum ferðamannastöðum, sem og starfsemi Slysavarnaskóla sjómanna. Auk þess tryggir Sjóvá eignir og búnað björgunarsveita Landsbjargar og veitir björgunarfólki mikilvæga tryggingavernd við störf sín.
„Við hjá Sjóvá erum afar stolt af því að hafa staðið við bakið á Slysavarnafélaginu Landsbjörg allt frá stofnun samtakanna árið 1999. Samstarfið endurspeglar það sem við leggjum mikla áherslu á í okkar starfsemi, að stuðla að auknu öryggi og koma í veg fyrir slys. Í gegnum árin höfum við stutt fjölbreytt verkefni, allt frá kaupum á björgunarskipum og þróun öryggislausna til fræðslu og forvarna. Það er okkur mikilvægt að stuðningurinn skili sér í öflugra björgunarstarfi og auknu öryggi fyrir alla landsmenn sem og ferðamenn. Við lítum á þetta sem langtímasamstarf sem við erum bæði þakklát fyrir og stolt af,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
Björgunarsveitir Landsbjargar gegna lykilhlutverki í öryggisneti íslensks samfélags og byggir starfið á þúsundum sjálfboðaliða sem eru reiðubúnir að leggja af stað þegar á reynir. Traustur stuðningur samstarfsaðila er því mikilvægur þáttur í að tryggja öflugt og vel búið björgunarstarf um allt land.
„Stuðningur Sjóvár í gegnum tíðina hefur verið okkur hjá Landsbjörgu afar mikilvægur. Björgunarsveitirnar byggja á sjálfboðaliðastarfi og til þess að þær geti sinnt sínu hlutverki þarf öflugan búnað, góða þjálfun og traustan bakhjarl. Samstarfið við Sjóvá hefur gert okkur kleift að efla starfsemina á fjölmörgum sviðum, meðal annars með nýjum björgunarskipum, stuðningi við Hálendisvaktina og mikilvægum forvarnaverkefnum. Ekki síður skiptir máli að björgunarfólkið okkar sé vel tryggt þegar það leggur sig fram við að hjálpa öðrum. Það er mikils virði að eiga samstarfsaðila sem hefur staðið með okkur í meira en aldarfjórðung,“ segir Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélags Landsbjargar.
Með endurnýjun styrktarsamningsins staðfesta Sjóvá og Landsbjörg áframhaldandi samstarf sitt með það sameiginlega markmið að efla slysavarnir, styðja við björgunarstarf og stuðla að öruggara samfélagi.
