Sjóvá hefur gefið bíltæknibrautum Borgarholtsskóla rafmagnsbíl af gerðinni Hyundai IONIQ 5 til að styðja við verklega kennslu og efla menntun framtíðar fagfólks í bílgreinum.
Rafmagnsbíllinn lenti í óhappi þar sem rafhlaðan varð fyrir skemmdum. Kostnaður við viðgerð er umtalsverður og bíllinn fer því ekki aftur í umferð en í staðinn nýtist hann nú sem raunhæft kennslutæki. Bíllinn er ökuhæfur og hjólabúnaður í lagi, sem gefur nemendum fjölbreytt tækifæri til verklegrar þjálfunar í bifvélavirkjun, bílasmíði og bílamálun.
„Við hjá Sjóvá viljum styðja við menntun og með þessari gjöf skapa nemendum tækifæri til að vinna með raunverkefni sem endurspegla þau viðfangsefni sem þeir munu mæta á vinnumarkaði,“ segir Sigríður Birna Róbertsdóttir, verkefnastjóri ökutækjatjóna hjá Sjóvá.
„Gjafir sem þessi skipta miklu máli fyrir kennsluna. Þær gera okkur kleift að bjóða nemendum upp á námsumhverfi þar sem þeir fá að takast á við verkefni sem endurspegla raunverulegar aðstæður í atvinnulífinu,“ segir Ingibjörg Guðmundsdóttir, sviðstjóri iðn- og starfsnáms hjá Borgarholtsskóla.
Samstarf atvinnulífs og menntastofnana er mikilvægur þáttur í að efla starfsmenntun og tryggja að nemendur öðlist þekkingu og reynslu sem nýtist vel í framtíðarstörfum.
