Sjóvá hlaut í dag viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum 2026.
Viðurkenningin Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum byggir á úttekt á stjórnarháttum sem tekur mið af leiðbeiningum sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa gefið út. Viðurkenningarnar hafa verið veittar undanfarin ár til að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti.
Það er Stjórnvísi sem hefur umsjón með verkefninu en í ár hlutu 18 fyrirtæki þessa nafnbót.
