Við bjóðum íbúum og fyrirtækjaeigendum á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni að koma við og fá persónulega ráðgjöf og þjónustu tengda tryggingum fimmtudaginn 12. mars kl. 12:00-18:00 í félagsheimilinu Leikskálum, Víkurbraut 8.
Það verður heitt á könnunni og þær Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir, útibússtjóri Sjóvá á Selfossi, og Katarzyna Krolikowska, þjónusturáðgjafi, taka á móti þér með bros á vör. Þær veita þér persónulega ráðgjöf og þjónustu, hvort sem það er tengt tryggingum fyrir þig og fjölskylduna eða fyrirtækið þitt.
Þá hvetjum við pólskumælandi íbúa og fyrirtækjaeigendur sérstaklega til þess að koma og ræða við okkur um tryggingar á pólsku.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Með kveðju, starfsfólk Sjóvá