Sterk fyrirtækjamenning og sérþekking starfsfólks á tryggingum liggja að baki árangri Sjóvár að sögn Hermanns Björnssonar forstjóra.
„Þetta er mikil viðurkenning sem starfsfólkið okkar kann sannarlega að meta enda einkennist menning fyrirtækisins af metnaði til að gera vel, sterkum vilja til að ná árangri og heilbrigðum keppnisanda,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, um viðurkenningu félagsins sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Viðskiptavinir og hluthafar kunni einnig að meta hana. Aðspurður hvað skýri árangurinn nefnir hann fyrst fyrirtækjamenninguna.
„Við vitum að ánægt starfsfólk skapar ánægða viðskiptavini og því byggjum við á djúpri þjónustumenningu, sérþekkingu á tryggingum og traustum rekstri,“ segir Hermann. Samhliða því sé rík virðing fyrir ábyrgðinni og regluverkinu sem fylgi því að vera eftirlitsskylt félag og skráð í kauphöll. Það eigi við um stjórn, stjórnendur og starfsfólk á öllum sviðum félagsins.
Hermann segir árangurinn meðal annars endurspeglast í því að Sjóvá hafi verið efst í Íslensku ánægjuvoginni meðal tryggingafélaga níu ár í röð. „Við höfum jafnframt fjárfest markvisst í sterkum tækniinnviðum og stafrænum lausnum til að einfalda þjónustuna og bæta upplifun viðskiptavina,“ segir hann.
Stofninn sé dæmi um hvernig félagið deili góðum árangri með viðskiptavinum. Yfir 32 þúsund fjölskyldur fengu samtals um milljarð króna endurgreiddan vegna tjónleysis árið 2025.
Sjóvá var stofnað árið 1918 og hefur því starfað í nær 110 ár. Hermann segir félagið ætla að halda áfram að þróast á þeim grunni, leiða vöruþróun og nýta snerpu og flatt skipulag til að bregðast við breyttum þörfum.
„Um leið leggjum við áherslu á ábyrgan rekstur gagnvart samfélaginu, viðskiptavinum, starfsfólki og eigendum,“ segir hann.
Þegar talið berst að nýjungum nefnir Hermann meðgöngutryggingu, sem Sjóvá hafi fyrst íslenskra tryggingafélaga boðið, einfaldara vöruframboð og fleiri stafrænar þjónustuleiðir.
„Sú breyting sem stendur sérstaklega upp úr er hvernig við höfum nýtt sjálfstæði og sérþekkingu Sjóvár á tryggingum til að ryðja brautina með lausnum sem skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.“
Hann segir traustan rekstur gefa félaginu svigrúm til aðgerða á borð við 2,5% leiðina og endurgreiðslur til viðskiptavina. Á árunum 2020 og 2022 hafi um 600 milljónir króna verið endurgreiddar í hvort skipti vegna breyttra aðstæðna í heimsfaraldrinum, þegar hægt hafi á samfélaginu og tjón almennt verið lægri.
Hjá Sjóvá starfa um 190 einstaklingar og Hermann segir sérþekkingu þeirra á tryggingum og tjónaþjónustu gegna lykilhlutverki í árangri félagsins.
„Ég segi því oft að það séu 190 ástæður fyrir árangri Sjóvár. Hvert og eitt þeirra sér skýr merki um framlag sitt í daglegum rekstri og árangri félagsins,“ segir Hermann.
Hann segir menninguna byggja á skýru umboði og samstarfi þvert á deildir. Starfsfólkið hafi rödd og taki virkan þátt í stefnumótun.
„Stefnan kemur ekki að ofan heldur verður til í samtali og samstarfi innan félagsins,“ segir hann en þessi menning, ásamt sérþekkingu og metnaði starfsfólks, hafi styrkt Sjóvá sem eina íslenska tryggingafélagið sem sé ótengt bankastarfsemi.
Hermann sér fjölmörg tækifæri til vaxtar og þróunar fram undan en segir þjónustuna vera í lykilhlutverki. Félagið ætli að byggja á sérþekkingu sinni, leiða vöruþróun, efla stafrænar lausnir og gera þjónustuna einfaldari og aðgengilegri.
„Þarfir og væntingar viðskiptavina breytast hratt og þjónustan tekur stöðugt á sig nýja mynd. Þar skiptir snerpa okkarog geta til að taka ákvarðanir hratt miklu máli,“ segir Hermann. Starfsfólkið sé undirstaða áframhaldandi árangurs.
„Það er fólkið okkar sem gefur Sjóvá styrk, hjarta og sérstöðu. Það er fyrst og fremst því að þakka að við höfum náð árangri og munum halda áfram að sækja fram,“ segir hann að lokum.
Félagið ákvað að hækka ekki verð á tryggingum heimilisbíla umfram 2,5% næstu 12 mánuði frá næstu endurnýjun trygginga. Slíkar tryggingar eru að sögn Hermanns að jafnaði ríflega helmingur tryggingakostnaðar heimila. Um sé að ræða framlag félagsins til að sporna gegn verðbólgu.
„Náist verðbólga ekki niður getur kostnaður okkar numið um hálfum milljarði króna,“ segir Hermann. Hann segir traustan rekstur skapa svigrúm til aðgerðarinnar og að Sjóvá vilji sýna ábyrgð í verki með skýrum og sýnilegum aðgerðum.
Ofangreind umfjöllun birtist í Viðskiptablaðinu 21. október sl.

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.