Sjóvá og Miðstöð slysavarna barna bjóða foreldrum barna á aldrinum 0-3 ára og öðrum áhugasömum aðstandendum á ókeypis forvarnanámskeið Miðstöðvar slysavarna barna. Námskeiðið „Öryggi ungra barna á heimilinu“ fjallar um hvernig tryggja megi öryggi barna á heimilum og í bílum.
Leiðbeinandi er Herdís L. Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna.
Námskeiðin verða haldin á Teams eftirfarandi daga:
Vinsamlegast skráið þátttöku hér.
Námskeiðið er 90 mínútur og fer fram á netinu í gegnum Teams. Hlekkur á námskeið verður sendur í kjölfar skráningar.
Fjallað verður um hvernig gera má heimilið sem öruggast og einnig er farið í gegnum helstu öryggisatriði í bílum, kennt á notkun barnabílstóla og ráðgjöf veitt um val á barnabílstólum og öryggisvörum.
Þátttakendur fá gjafapakka frá Sjóvá með öryggisvörum fyrir heimilið og gjöf fyrir barnið sem sendur verður í kjölfar námskeiðsins.
Með góðri forvarnakveðju,
Sjóvá og Miðstöð slysavarna barna