Reglulegt viðhald og góðar forvarnir eru lykillinn að öruggu og verðmætu húsnæði. Húsfélög bera ábyrgð á að skapa öruggt og þægilegt umhverfi fyrir alla íbúa.
Við höfum útbúið veggspjald þar sem farið er yfir helstu forvarnir fyrir húsfélög. Hægt er að prenta veggspjaldið út eða fá eintak hjá Sjóvá til að hengja upp í sameign.
Skoðið nánari upplýsingar um eldvarnir, vatnstjón og innbrotavarnir á sjova.is eða hafið samband við ráðgjafa okkar á netspjalli, sendið tölvupóst á sjova@sjova.is eða hringið í síma 440 2000 ef óskað er eftir frekari ráðleggingum eða aðstoð vegna forvarna.