Í viku 11 keypti Sjóvá 3.232.530 eigin hluti að kaupverði 94.648.478 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
15.3.2021 | 09:57:14 | 646.506 | 29,60 | 19.136.578 |
16.3.2021 | 09:49:40 | 298.703 | 29,15 | 8.707.192 |
10:13:04 | 347.803 | 29,15 | 10.138.457 | |
17.3.2021 | 13:20:23 | 646.294 | 29,20 | 18.871.785 |
14:32:59 | 212 | 29,20 | 6.190 | |
18.3.2021 | 09:39:05 | 646.506 | 29,15 | 18.845.650 |
19.3.2021 | 10:45:05 | 646.506 | 29,30 | 18.942.626 |
Samtals | 3.232.530 | 94.648.478 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2021.
Sjóvá átti 3.144.186 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 6.376.716 eigin hluti eða sem nemur 0,48% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 4.525.542 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,34% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 135.636.959 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 15.923.567 hlutum eða sem nemur 1,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 12. september 2021, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is