Í viku 44 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 627.358 eigin hluti að kaupverði 9.880.889 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
29.10.2019 | 09:30:03 | 627.358 | 15,75 | 9.880.889 |
Samtals | 627.358 | 9.880.889 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 2. september 2019.
Sjóvá átti 27.766.216 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 28.393.574 eigin hluti eða sem nemur 2,04% af útgefnum hlutum í félaginu.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 15.060.241 eigin hluti í félaginu sem samsvarar 1,08% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 236.119.402 kr. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 15.060.241 hlutum eða sem nemur 1,08% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 250.000.000 kr. Sjóvá á samtals 2,04% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.389.196.763.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is