
Í síðustu viku kynntu Prósent og Stjórnvísi niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2024. Sjóvá var efst tryggingafélaga, með 69,1 stig og marktækt hæstu einkunnina á tryggingamarkaði og hlýtur því gullmerki Ánægjuvogarinnar.
Þetta er áttunda árið í röð sem Sjóvá er efst en aldrei hefur eitt tryggingafélag verið efst í Ánægjuvoginni svo oft í röð.
Við erum stolt og þakklát fyrir að viðskiptavinir okkar eru þeir ánægðustu á tryggingamarkaði en umfram allt er viðurkenningin hvatning til okkar að halda áfram að gera enn betur.
Sigurvegarar Íslensku ánægjuvogarinnar 2024 – Gullhafar
- Indó 84,4 stig meðal banka
- Dropp 84,2 stig meðal póstþjónustufyrirtækja
- Costco eldsneyti 81,0 stig meðal eldsneytis- og hraðhleðslustöðva
- IKEA 78,2 stig meðal húsgagnaverslana
- Nova 77,9 stig meðal fjarskiptafyrirtækja
- Krónan 74,1 stig meðal matvöruverslana
- A4 73,8 stig meðal ritfangaverslana
- Icelandair 72,3 stig meðal flugfélaga
- BYKO 71,5 stig meðal byggingavöruverslana
- Sjóvá 69,1 stig meðal tryggingafélaga
Um Íslensku ánægjuvogina
Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd í höndum Prósent.
Nokkrir þættir eru mældir sem hafa áhrif á ánægju viðskiptavina þ.e. væntingar, ímynd, mat á gæðum og virði þjónustu og samanstendur Ánægjuvogin af þremur spurningum:
- Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með reynslu þína af fyrirtækinu?
- Hugleiddu allar væntingar þínar til fyrirtækisins annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir fyrirtækið væntingar þínar?
- Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna fyrirtæki. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtækið]?
Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju.