EN
  • Mínar síður
Loka valmynd
  • Einstaklingar
    • Líf og heilsa
      • Líf- og sjúkdómatrygging
      • Barnatrygging
      • Líftrygging
      • Sjúkdómatrygging
      • Sjúkra- og slysatryggingar
      • Sjúkrakostnaðartrygging
      • Sparnaðarlíftrygging
    • Heimilistryggingar
      • Fjölskylduvernd
      • Fasteignatrygging
      • Brunatrygging
      • Sumarhúsatrygging
      • Innbúsverðmæti
      • Innbústrygging
      • Búslóðaflutningur
      • Frítímaslysatrygging
      • Reiðhjólatryggingar
      • Dýratryggingar
      • Vetraríþróttir
    • Ökutækjatryggingar
      • Lögboðin ökutækjatrygging
      • Kaskó
      • Kaskóskoðun - upplýsingar um myndir
      • Bílrúðutrygging
      • Vagnakaskó
      • Bílpróf
      • Vespur og létt bifhjól
      • Eftirvagnar
      • Tryggingar í akstursíþróttum
    • Stofn
      • Hvernig kemst ég í Stofn?
      • Stofnendurgreiðsla
      • Afslættir og fríðindi
      • Afsláttur af barnabílstólum
      • Afsláttur af dekkjum
      • Afsláttur af bílaleigubíl
      • Vegaaðstoð
    • Ferðatryggingar
      • Tryggingar á ferðalagi
      • Ferðatryggingar
      • SOS Neyðarþjónusta
    • Gott að vita
      • Fá tilboð í tryggingar
      • Greiðsludreifing
      • Mitt Sjóvá
      • Rafræn viðskipti
      • Áramót
      • Nágrannavarsla
      • Innsýn Sjóvá
      • Upplýsingar varðandi niðurfellingu maí iðgjalda 2022
      • Tjón af völdum jarðskjálfta og forvarnir gegn þeim
      • Vísitölur
    • Skilmálar og eyðublöð
      • Skilmálar
      • Eyðublöð
    • Forvarnir
      • Almennt um forvarnir Sjóvá
      • Nágrannavarsla
      • Eldvarnir
      • Sumarhús
      • Vatnsvarnir
      • Barnabílstólar
      • Viðbúnaður vegna jarðskjálfta
      • Miðstöð slysavarna barna
      • Safetravel app
  • Fyrirtæki
    • Eignir
      • Fasteignir
      • Lausafé
      • Rekstrarstöðvun
    • Starfsmenn
      • Slysatrygging launþega
      • Sjúkra- og slysatryggingar starfsmanna
      • Líf- og heilsutryggingar
      • Ferðatryggingar starfsmanna
    • Ökutæki
      • Ökutækjatrygging
      • Kaskótrygging
      • Aksturstrygging vinnuvéla
      • Húftrygging vinnuvéla
    • Ábyrgð
      • Ábyrgðartrygging atvinnurekstrar
      • Starfsábyrgð
      • Ábyrgð stjórnar og stjórnenda
    • Sjótryggingar
      • Húftryggingar skipa
      • Áhafnatrygging
      • Afla- og veiðafæratrygging
      • Nótatrygging
      • Farmtryggingar
    • Tryggingar fyrir þinn rekstur
      • Ferðaþjónusta
      • Framleiðsla og iðnaður
      • Landbúnaður
      • Sjávarútvegur
      • Sveitarfélög
      • Verslun og þjónusta
      • Íþróttafélög
    • Þjónustan
      • Rafrænn ráðgjafi
      • Fyrirtækjaþjónusta
      • Greiðsludreifing
      • Tjón
      • Forvarnir fyrirtækja
      • Rafrænir reikningar
      • Brunavarnir
    • Skilmálar og eyðublöð
      • Skilmálar
      • Eyðublöð
  • Tjón
    • Viðbrögð við tjóni
      • Hvernig tilkynni ég tjón?
      • Fyrstu viðbrögð
      • Spurt og svarað
      • Ökutæki
      • Bílrúður
      • Fasteignir
      • Líf- og heilsa
      • Ferðalög og farangur
      • Innbú- og lausamunir
      • Dýratryggingar
      • Fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög
      • Húsfélög
    • Þjónusta/upplýsingar
      • Almennar upplýsingar um ökutækjatjón
      • Samstarfsaðilar ökutækjatjóna
      • Á ég rétt á bílaleigubíl
      • SOS Neyðarþjónusta
      • Áfallahjálp
    • Forvarnir
      • Almennt um forvarnir
      • Framrúðuplástur
      • Forvarnir fyrirtækja
      • SafeTravel appið
  • Um okkur
    • Fréttir
      • Almennar fréttir
      • Viskubrunnur
      • Fréttir frá Kauphöllinni
      • Viðburðir
      • Eldri fréttir
    • Fjárfestar
      • Fjárhagsdagatal
      • Fjárhagsupplýsingar
      • Hluthafalisti
      • Hluthafafundur
      • Stjórn og skipurit
      • Tengiliðir fjárfesta
      • Ársskýrsla 2021
      • Afkomukynning
      • Aðalfundur 2023
      • Ársskýrsla 2022
    • Sjóvá
      • Útibú og umboð
      • Hlutverk og framtíðarsýn
      • Siðareglur Sjóvá
      • Ábendingar, kvartanir & hrós
      • Lagalegur fyrirvari
      • Sjóvá-Almennar líftryggingar hf.
      • Sjóvá og sjávarútvegurinn
      • Starfsemi Sjóvár 100 ára
    • Vinnustaðurinn
      • Starfsumsóknir
      • Vinnustaðurinn Sjóvá
      • Vottanir
    • Markaðsmál
      • Fjölmiðlatorg
      • Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ
      • Sjóvá spjallið
    • Samfélagsleg ábyrgð
      • Stefna um sjálfbærni og samfélagsábyrgð
      • Sjóvá og samþætting við heimsmarkmið
      • Umhverfisstefna
      • Slysavarnafélagið Landsbjörg
      • Styrkbeiðni
      • Samfélagsskýrsla 2021
    • Öryggi og persónuvernd
      • Öryggi og persónuvernd á vefnum
      • Meðferð upplýsinga
      • Stefna um persónuvernd
      • Gagnagátt
      • Rafrænir reikningar
  • Útibú
  • Mitt Sjóvá
  • EN
  • Vinsælar leitir
    Viðurkennd verkstæði Heimilistrygging Tilkynna tjón English

Tryggingar í golfi

Þeir sem stunda golf sem afþreyingu eru flestir vel tryggðir hafi þeir Slysatryggingu í frítíma sem fylgir Fjölskylduvernd 2 og Fjölskylduvernd 3. Afreksíþróttafólk og golfkennarar þurfa þó að huga að sinni vernd.

Spurt og svarað

Hvað ef ég slasast á golfvellinum?
Loka ítarefni

Al­menn­ingur sem stundar golf sem afþrey­ingu er tryggður í frí­tíma­slysa­trygg­ingu fjöl­skyldu­verndar þegar hann spilar al­mennt golf og í golf­mótum þar sem hver sem er getur  tekið þátt­t og ekki er kraf­ist lág­marksforgjafar.

Golf­kenn­arar og þeir sem keppa og æfa undir leiðsögn þjálfara á vegum félaga eða samtaka sem hafa íþróttakeppni að markmiði,  þurfa að huga að sinni trygg­inga­vernd. .

Ef það síðarnefnda á við um þig, geturðu tryggt þig sérstaklega með Almennri slysatryggingu.

Hvað ef ég slasast í golfmóti?
Loka ítarefni

Sjá svar hér að ofan.

Hvað ef ég veld öðrum tjóni í golfi?
Loka ítarefni

Ef golfari verður fyrir því óláni að valda öðrum tjóni við golfiðkun eru slík tjón bætt úr ábyrgðartryggingu Fjölskylduverndar 1 og 2 svo lengi sem rekja má tjónið til skaðabótaskyldrar háttsemi svo sem gáleysis.

Ábyrgðartryggingin í Fjölskylduvernd 3 er víðtækari þar sem hún bætir slík tjón án tillits til þess hvort tjónið sé að rekja til skaðabótaskyldrar háttsemi eða óhappatilviks.

Hvað ef golfbúnaðinum mínum er stolið?
Loka ítarefni

Golfbúnaðurinn er tryggður í Fjölskylduvernd, eins og annað innbú. Ef honum er stolið við innbrot í íbúð er hann bættur. Ef honum er stolið við innbrot í bílskúr eða öðrum geymslum utan íbúðar getur bótafjárhæð verið takmörkuð. Ef búnaðinum er stolið úr ökutæki og greinileg merki eru um innbrot, er hann bættur.

Búnaður fæst ekki bættur ef honum er stolið þar sem hann er skilinn eftir án eftirlits.

Þarf ég að tryggja golfbúnaðinn sérstaklega?
Loka ítarefni

Ekki á að vera þörf á að tryggja búnaðinn sérstaklega ef þú ert með Fjölskylduvernd, nema um mjög dýran búnað sé að ræða. Ef þú ert í vafa leitaðu þá til ráðgjafa okkar. Við ráðleggjum viðskiptavinum okkar alltaf að tryggja að innbúsverðmæti sé ekki vanáætlað, til að tryggja að fullar bætur fáist ef þeir verða fyrir miklu tjóni.

Hvað ef ég slasast við að spila golf erlendis?
Loka ítarefni

Það er mikilvægt að þú kynnir þér hvort tryggingarnar þínar gildi þegar þú ferðast til útlanda. Sem dæmi gildir Slysatrygging í frítíma, sem er hluti af Fjölskylduvernd 2 og Fjölskylduvernd 3, hvar sem er í heiminum í allt að níu mánuði. Engin tímamörk eru hins vegar í gildi í Almennri slysatryggingu.

Alveg golfóð

Ragnhildur Sigurðardóttir, eða Ragga Sig eins og hún er kölluð, hefur kennt Íslendingum undirstöðuatriðin í golfi í meira en 30 ár. Hún kallar eftir umræðu um tryggingar kylfinga.

Ragga er íslenskum kylfingum að góðu kunn. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í golfi, fyrrverandi landsliðsmaður og mikilvirkur golfkennari. Hún heldur einnig úti síðunni www.apari.is þar sem er að finna fría ráðgjöf og upplýsingar fyrir kylfinga. 

Ferill Röggu hófst snemma.

Ég byrjaði árið 1983. Ég bjó við hliðina á golfvellinum uppi í Grafarholti og eitt sumarið fékk bróðir minn vinnu þar. Hann dró mig með sér og síðan þá hef ég verið í golfi. Það var stutt fyrir okkur að fara með golfpokann á bakinu og við spiluðum fram á nætur. Pabbi og mamma þurftu að leita að okkur á kvöldin til að ná okkur heim. Á haustin þegar það fór að dimma spiluðum við í myrkri.

Var einhver sem sagði ykkur til? Fóruð þið á einhver námskeið?

Nei, það var ekki mikið framboð á því þá. Núna er enginn maður með mönnum nema hann fari á námskeið. Maður byrjaði bara að æfa og svo byrjaði maður að spila. Nú eru komnir lærðir golfkennarar í alla stærstu klúbbana og flesta þá minni líka. Það er fagmannlega staðið að öllu uppbyggingarstarfi, sem er náttúrlega stórkostlegt. Krakkarnir fá góða meðhöndlun, sem og allir meðlimir klúbbanna. Ég mæli með því að að fólk fái tilsögn í upphafi til að hafa undirstöðuna góða.

Hún segir vellina líka hafa breyst til batnaðar.

Þegar ég var unglingur voru flatirnar eins og þvottabretti langt fram eftir sumri. Þetta hefur breyst, nú er umhirðan miklu betri og vellirnir margir sambærilegir við velli erlendis. Það er rosalega flott. Þá hefur stóru völlunum fjölgað mikið, en þyrftu í rauninni að vera enn fleiri til að anna eftirspurn. Það má svo reyndar líka hvetja reykvíska kylfinga til að prófa að fara út fyrir höfuðborgina. Þar er oft laust, og stundum er maður fljótari að keyra út á land en að bíða eftir lausum rástíma í bænum. 

Mörgum nýliðum vex kostnaðurinn í augum, til að mynda geta félagsgjöld í golfklúbbum kostað sitt. Er nauðsynlegt að vera í klúbbi?

Með Golfkortinu þarftu í raun ekki að vera í klúbbi. Það veitir afslátt af vallagjöldum víða um land. Það er mun ódýrara að byrja þannig, þó að ég vilji alls ekki mæla á móti því að fólk gangi í klúbb. Sumir klúbbar eru með svokallað nýliðagjald. Hjá Golfklúbbnum á Selfossi er nýliðagjaldið nálægt 35.000 krónum og innifalin er 9 vikna kennsla. Það er geggjað verð, þó að fólk þurfi að keyra úr höfuðborginni á Selfoss.

Vantar upp á að fólk sé tryggt

Fyrsta Íslandsmeistaratitil sinn hlaut Ragga árið 1985, aðeins tveimur árum eftir að hún byrjaði að stunda sportið. Árangurinn þakkar hún gríðarlegum áhuga.

Þetta var hálfgert rugl. Ég var á golfvellinum allan daginn. Þegar maður hefur svona mikinn áhuga og sinnir honum lætur árangurinn ekki á sér standa. 

Aðeins sextán ára gömul byrjaði Ragga að kenna í golfskóla fyrir börn og unglinga, þá þegar búin að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Hún kenndi í skólanum í 10 ár og því eru ansi margir golfarar sem hafa lært undirstöðuatriðin hjá henni. Í dag er hún einn af þremur eigendum fyrirtækis sem selur golfferðir til Spánar.

Á hverju ári tökum við á móti á annað þúsund manns og það vantar stundum upp á að fólk sé vel tryggt. Það er alltaf eitthvað sem getur komið upp á. Spánverjar hafa reyndar veitt okkar fólki fulla þjónustu ef þeir eru með evrópska sjúkratryggingakortið en fólk þyrfti að huga betur að því hvernig það er tryggt ef eitthvað skemmist eða týnist. Það er mjög mikilvægt að huga vel að tryggingunum sínum í öllum ferðalögum, því fólk er misvel tryggt og fær þar af leiðandi mismunandi bætur fyrir sambærileg tjón. Fólk hefur tilhneigingu til þess að skjóta á frest málum sem þessum, því hugsunin um það að lenda í tjóni er eitthvað sem engum finnst þægilegt.

Ragga segir að sem betur fer séu slys í golfi ekki algeng.

Þetta er ekki áhættusport. Það kemur fyrir að fólk fái kúlu í höfuðið, og hræðileg slys hafa orðið þegar fólk hefur velt golfbílum. Svo er auðvitað alltaf hætta á því að maður fari holu í höggi og þurfi að bjóða öllum á barinn. Þess má geta að Ragga hefur þrisvar farið holu í höggi. 

Hér má skjóta inn í að slysatrygging í frítíma, sem er innifalin í Fjölskylduvernd 2 og 3 hjá Sjóvá, tekur til slysa sem golfarar verða fyrir þegar þeir stunda þetta áhugamál sitt. Hún nær líka til almenningsþátttöku í golfmótum en undanskilur æfingar og keppni í afreksíþróttum. Með afreksíþróttum er átt við einstaklings- og liðsíþróttir, sem æfðar eru reglulega undir leiðsögn þjálfara á vegum félaga og samtaka sem hafa íþróttakeppni að tilgangi.

Getur verið miskunnarlaust sport

Ragga kennir golf allan ársins hring, á Íslandi á sumrin, en á Spáni og Kanaríeyjum á öðrum árstímum. En verður hún aldrei leið á að golfa?

Ekki fræðilegur möguleiki. Ég hef aldrei orðið leið á golfi. Aldrei. En ég geri mér grein fyrir að það eru ekki allir eins og ég, ég er alveg golfóð. Fyrir flesta er gott að hafa önnur áhugamál í bland til að geta brotið þetta aðeins upp og hreinsað hugann. Golf getur verið miskunnarlaust sport; einn daginn finnst þér þú vera alveg með þetta og þann næsta er eins og sú tilfinning hafi verið hrifsuð frá þér. 

Hvaða ráð gefurðu byrjendum í íþróttinni?

Ég mæli með að fá kennslu. Á vefnum www.pga.is er listi yfir alla golfkennara á Íslandi sem eru með réttindi. Kylfinga skortir stundum upp á tæknigetu og nota efri hluta líkamans og hendurnar of mikið. Þá verður álag á bakið. Það geta komið álagsmeiðsl af því að fólk er ekki að nota fæturna rétt. Og ekki gleyma að hita upp. Það þarf ekki alltaf að slá til að hita upp, það er líka hægt að sveifla og hita kroppinn þannig. Englahopp eru líka fín, í hvaða íþrótt sem það er.

Það er samt ekkert að því að fólk sé búið að fikta aðeins áður en það kemur í kennslu, fá tilfinningu fyrir leiknum og læra að láta kylfuna vinna fyrir sig. Það getur hjálpað. Á æfingasvæðunum í Básum, Hraunkoti og fleiri stöðum er hægt að fá lánaðar kylfur og leigja golfkúlur til að æfa sig, ekki þarf að panta tíma, bara að mæta.

En búnaðurinn, þarf hann að vera dýr?

Góður búnaður hjálpar fólki, það er ekki spurning. Munurinn á góðri kylfu og því sem hentar ekki viðkomandi, er eins og munurinn á Ferrari og skellinöðru. Ekki kaupa „bara eitthvað.“ Fáðu hjálp við að velja kylfur og búnað sem hentar þér, annaðhvort í golfbúð eða hjá golfkennara. Ef þú ætlar að spara peninga er hægt að kaupa notaðar kylfur sem eru góðar. En auðvitað er þetta undir manni sjálfum komið líka. Virkilega góður kylfingur getur spilað vel með hverju sem er.

Tengdar síður

Reiðhjólatryggingar

Hvað þarf að hafa í huga varðandi tryggingar fyrir þá sem stunda hjólreiðar?

  • Sjá nánar

Hlauparar

Þeir sem stunda langhlaup sem almenningsíþrótt eru flestir vel tryggðir hafi þeir Slysatryggingu í frítíma sem fylgir Fjölskylduvernd 2 og Fjölskylduvernd 3. Þeir sem keppa í hlaupum þurfa þó að huga að sinni vernd.

  • Sjá nánar

Þú ert hér:

  1. Íslenska
  2. Einstaklingar
  3. Heimilistryggingar
  4. Golfarar
Sjóvá
  • Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Kt. 650909-1270
  • Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. Kt. 680568-2789
  • Kringlunni 5, 103 Reykjavík
Hafðu samband
Þjónustusími
440 2000
Tjónavakt
440 2424
Netfang
sjova@sjova.is
Vegaaðstoð
440 2222
Lagalegur fyrirvari
Opnunartímar
Kringlan
Mán - Fim 9:00 - 16:00
Fös 9:00 – 15:00
Útibú
Alla virka daga 11:00 – 15:00
  • Vottanir Sjóvá
Hafðu samband Smelltu hér
Þjónustusími
440 2000
94734A73-7B6C-480E-BF65-F0BF47918314Created with sketchtool.
Netspjall
Skilaboð
Ábending
Smelltu hér
Vinsælar leitir
Viðurkennd verkstæði Heimilistrygging Tilkynna tjón English

Fá tilboð í tryggingar

Engin skuldbinding

Tilkynna tjón

Fljótlegt og einfalt

Hafðu samband

Kringlunni 5 - 103 Reykjavík
Opnunartími útibúa 9:00 - 16:00

Þjónustusími: 440 2000

Tjónavakt: 440 2424

Vegaaðstoð: 440 2222

Netfang: sjova@sjova.is
Fax: 440 2020

Gagnvirkar leiðir til að hafa samband
Opna netspjall Ábendingar, kvartanir & hrós
Mitt Sjóvá

Á Mínu Sjóvá getur þú skoðað yfirlit yfir tryggingarnar þínar, tilkynnt tjón og margt fleira

Opna Mitt Sjóvá
  • Facebook
  • Linkedin
  • Instagram

Hvort viltu einstaklings- eða fyrirtækjatryggingar?



Fáðu tilboð í tryggingarnar þínar og komdu í hóp ánægðra viðskiptavina Sjóvá

Óska eftir tilboði

Til að halda áfram þarftu rafræn skilríki eða að stofna aðgang að Mínu Sjóvá.
Ertu nú þegar í viðskiptum við okkur?

Smelltu þá hér til að tala við næsta lausa þjónustufulltrúa

Fáðu tilboð í tryggingarnar þínar og komdu í hóp ánægðra viðskiptavina Sjóvá

Hefja tilboðsferli

Til að halda áfram þarftu rafræn skilríki
Ekki með rafræn skilríki eða nú þegar í viðskiptum við okkur?

Smelltu þá hér til að tala við næsta lausa þjónustufulltrúa