Vegaaðstoð

Vegaaðstoð Sjóvá er í boði næst helstu þéttbýliskjörnum landsins. Þjónusta er án endurgjalds fyrir viðskiptavini í Stofni, vildarklúbbi Sjóvá. Þú hringir í 440 2222 og færð þjónustu vegna eftirfarandi:
|
Þjónusta |
Þjónustusvæði | Þjónusta er veitt | |
| Aðstoð við útfyllingu tjónstilkynningar |
Höfuðborgarsvæðið |
Alla virka daga frá kl. 7.00 - 18.30 Laugardaga frá 10:30 - 17:00 | |
|
Sprungið dekk
Straumleysi
Bensínleysi |
Höfuðborgarsvæðið, Borgarnes, Akureyri, Egilsstaðir, Selfoss, Hveragerði og Reykjanesbær |
Allan sólarhringinn | |
Tjónaskýrslur

-
Síminn er 440-2222.
-
Þjónustan er miðuð við að ekki hafi orðið slys á fólki í umferðaróhappinu.
-
Sérhæfðir en jafnframt hlutlausir starfsmenn Aðstoðar og Öryggis taka ljósmyndir af vettvangi, skrá nákvæma atvikalýsingu og senda okkur tjónaskýrslu rafrænt.
-
Þjónustan er í boði á milli klukkan 07:00 og 18:30 alla virka daga.
-
Þjónustan er eingöngu í boði á höfuðborgarsvæðinu.
-
Ökumenn eru í mörgum tilfellum óvissir um hvernig fylla eigi út tjónstilkynningar, þetta er því kærkomin þjónusta fyrir þá sem lenda í ökutækjatjónum.
Vegaaðstoð fyrir viðskiptavini í Stofni
-
Sprungið dekk.
-
Bensínið búið.
-
Straumlaus bíll.
Lesa meira um vegaaðstoð Sjóvá
Vegaaðstoð er í boði fyrir viðskiptavini í Stofni án endurgjalds árið 2009. Þjónustan er bundin við ákveðin þjónustusvæði um landið.
Aðstoð við útfyllingu tjónstilkynningar er í boði fyrir viðskiptavini með ökutækjatryggingar í Stofni hjá Sjóvá. Þjónustan er í boði á höfuðborgarsvæðinu og er framkvæmd af hlutlausum aðila, Aðstoð & Öryggi.
Vegaaðstoð
-
Verðir þú fyrir því að dekk sé loftlaust, bíllinn bensín- eða straumlaus geturðu hringt í 440 2222 og fengið aðstoð. -
Þjónustan er fyrir viðskiptavini í STOFNI og er bundin við höfuðborgarsvæðið, Borgarnes, Akureyri, Egilsstaði, Selfoss og Reykjanesbæ. Þjónustan er gjaldfrjáls.
-
Þjónustan er ekki boði fyrir aðra en viðskiptavini í STOFNI, vildarklúbbi Sjóvá.
-
Viðskiptavinir í STOFNI, sem búa utan skilgreinds þjónustusvæðis geta að sjálfsögðu nýtt sér þjónustuna inni á þeim þjónustusvæðum sem tilgreind eru hér að ofan.
Spurt og svarað
Dæmi um þjónustu
-
Rafmagn
Ef bílinn verður straumlaus, t.d á köldum vetrarmorgni er veitt aðstoð við að koma bílnum í gang. -
Bensín
Ef bílinn er bensínlaus fæst aðstoð og brúsi með 5 lítrum af bensíni eða olíu (viðskiptavinur borgar aðeins eldsneytið). Nóg til að komast á næstu bensínstöð. -
Dekk
Ef dekk springur og dekkjaskipti eru vandamál, t.d ef vantar tjakk eða felgulykil kemur aðstoðin til hjálpar við að skipta. -
Verkstæði
Ef eitthvað er að bílnum, sem ekki er hægt að kippa í lag á staðnum, hringir Sjóvá Vegaaðstoð á dráttarbíl (viðskiptavinur borgar aðeins kostnað við dráttarbílinn).
Spurt og svarað
Er þjónustan veitt allan sólarhringinn?
Þjónusta vegna Vegaaðstoðar er veitt allan sólarhringinn nema aðstoð á tjónsstað vegna útfyllingar tjónstilkynningar er veitt frá kl. 07.00 til 18.30 alla virka daga.
Hversu langan tíma tekur það Vegaaðstoð Sjóvá að koma á staðinn?
Í flestum tilfellum er þjónustan veitt þegar í stað en miðað er við að bið eftir aðstoð sé ekki lengri en ein klukkustund.
Gildir Vegaaðstoðin þó ég sé ekki á mínum eigin bíl?
Já, hún gildir fyrir það ökutæki sem STOFN félagi er á hverju sinni. Að sama skapi gildir hún líka ef STOFN félagi er farþegi í öðrum bíl.
Á hvaða svæðum er þjónustan virk?
Þjónusta Vegaaðstoðar er bundin við skipulagt þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu. þ.e. innan bæjarmarka Álftaness, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæjar. Skipulagt þéttbýli á Akureyri, Selfossi, Hveragerði, Reykjanesbæ, Borgarnesi og Egilsstöðum.
Hvað kostar að vera með Vegaðstoð Sjóvá?
Þjónustan er gjaldfrjáls fyrir þá sem eru í Stofni, vildarklúbbi Sjóvá.
Ég er í STOFNI en bý ekki á þeim svæðum þar sem að þjónustan er virk
Þjónustan nær til um 80% landsmanna í dag og áætlað er að útvíkka hana enn frekar. Ef þú átt leið hjá þeim stöðum þar sem hún er í boði getur þú að sjálfsögðu notfært þér hana.
Það eina sem þú þarft að gera er að gefa upp kennitöluna þína til að þjónustan sé veitt. Einfalt og þægilegt.
Ég er atvinnubílstjóri og er í STOFNI. Er þjónustan í boði fyrir atvinnubílinn?
Vegaaðstoð er eingöngu veitt vegna einkabíla en ekki ökutækja í atvinnurekstri.
Auglýsingar
Komdu í Stofn og fáðu meira

