Starfsfólk
-
Sjóvá hefur á að skipa hæfu og sérfróðu starfsfólki sem ætíð er reiðubúið til að veita upplýsingar og ráðgjöf um allt er lýtur að vátryggingum og vátryggingavernd.
-
Hér er að finna upplýsingar um starfsmenn félagsins, ásamt starfsheitum, viðskiptavinum til glöggvunar.
-
Vinsamlegast athugið að hópsendingar á netföng starfsmanna eru ekki leyfilegar.
Jafnréttisstefna
-
Það er stefna Sjóvá að gæta fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla og að hver starfsmaður verði metinn og virtur að verðleikum á eigin forsendum.
-
Með jafnri stöðu kynja nýtist sú auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfi þeirra. Þannig verði tryggt að mannauður félagsins verði sem best nýttur.


