Líftrygging

Líftrygging tryggir fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar
Líftrygging getur aldrei bætt þann skaða sem fjölskyldan verður fyrir við fráfall ástvinar en líftryggingarbætur geta vissulega dregið úr fjárhagslegum áhrifum áfallsins. Bæturnar stuðla að því að þeir sem eftir standa geti skipulagt líf sitt á nýjan leik í ljósi breyttra aðstæðna án þess að hafa þungar áhyggjur af fjármálum sínum og heimilisins.
Líftrygging veitir öryggi
Þeir sem kaupa líftryggingu ákveða sjálfir líftryggingarfjárhæðina. Ráðlegt er að hafa í huga að fjárhæðin dugi að minnsta kosti til að hagræða skuldastöðu með það að markmiði að tryggja öruggan heimilisrekstur þrátt fyrir breyttar aðstæður. Ráðgjafi Sjóvá aðstoðar við að sérsníða líftrygginguna að þörfum hvers og eins.
Aldurstengd líftrygging eða Líftrygging með jöfnu iðgjaldi
Hjá Sjóvá getur þú valið um tvær tegundir líftrygginga. Annars vegar hefðbundna líftryggingu þar sem iðgjaldið er aldurstengt og bótafjárhæð og iðgjald er tengt vísitölu. Hins vegar Líftryggingu með jöfnu iðgjaldi þar sem iðgjald og bótafjárhæð er sú sama allan samningstímann.
Kynntu þér málið hér fyrir neðan.
Hvernig lítur dæmið út hjá þér?
Iðgjaldagreiðslur líftryggingar
Iðgjald líftryggingar ákvarðast af valinni líftryggingarfjárhæð, aldri, kyni og því hvort viðkomandi reykir eða reykir ekki. Hægt er að velja um mismunandi form iðgjaldagreiðslna; aldurstengdar eða með jöfnu iðgjaldi.Ráðlegt er að miða við að bótafjárhæðin dugi að minnsta kosti til að greiða upp langtímaskuldir og standi undir heimilisrekstrinum fyrstu misserin eftir að áfallið dynur yfir.
Aldurstengt iðgjald. Ef valin er líftrygging með aldurstengdu iðgjaldi hækkar líftryggingarfjárhæð og iðgjald með aldri og vísitölu neysluverðs.
Jafnaðariðgjald. Ef valin er líftrygging með jöfnu iðgjaldi er iðgjald fundið út frá lengd samningstíma auk framangreindra þátta. Vátryggingarfjárhæð og iðgjald haldast óbreytt út samningstímann. Ef jafnaðariðgjald er valið hækkar líftryggingarfjárhæð ekki í takt við vísitölu neysluverðs.
Blönduð leið. Hægt er að blanda þessum leiðum saman og taka hluta af líftryggingunni með aldurstengdu iðgjaldi og hluta með jöfnu iðgjaldi. Ræddu við ráðgjafa okkar um hvaða leið hentar þér.
Iðgjaldafrelsi
Glati vátryggður meira en helmingi starfsorku sinnar má sækja um að fá iðgjaldið lækkað eða fellt niður án þess að tryggingarverndin skerðist.
Hvenær er líftrygging greidd út?
Líftrygging er greidd út hvort sem dánarorsök er slys eða sjúkdómur. Líftryggingabætur eru greiddar út í einu lagi og eru skattfrjálsar.
Hverjir fá líftryggingarbæturnar?
Bætur líftrygginga eru greiddar þeim sem hinn tryggði tilnefnir sem rétthafa bótanna samkvæmt samningi við Sjóvá-Almennar líftryggingar. Nokkrir möguleikar eru í boði hvað rétthafaskráninguna varðar og er mikilvægt að einstaklingar vandi þessa tilnefningu.
- Ef skráðir eru lögerfingjar þá fá börn hins vátryggða tvo þriðju hluta bótanna á móti einum þriðja hlut maka.
- Ef óafturkallanleg tilnefning er notuð er einn rétthafi skráður og hefur vátryggður þá lofað rétthafa að afturkalla ekki tilnefninguna og verður henni einungis breytt með skriflegu samþykki rétthafa.
- Einnig er möguleiki að skrá nokkra rétthafa og skipta fjárhæðinni á þá eftir prósentu. Þá er notuð tilnefningin skráning á nafn.
- Ef rétthafi er ekki tilnefndur falla bætur til maka vátryggðs.
- Ef vátryggður lætur ekki eftir sig maka fellur fjárhæðin til erfingja samkvæmt lögum eða erfðarskrá.
Áhætta vegna tómstundaiðju
Líftryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
- Köfun
- einkaflug
- fjallaklifur erlendis
- svifdrekaflug
- svifflug o.þ.h.
flokkast sem séráhættur sem yfirleitt fást tryggðar en gegn viðbótariðgjaldi.
Gildistími
Líftryggður á rétt á að halda líftryggingu sinni til allt að 70 ára aldurs.
Ást er...

Framleiðandi er Sagafilm fyrir Gott fólk og Sjóvá. Framleiðsluár er 2005 og leikstjóri Sævar Guðmundsson.
