Vagnakaskó

Vagnakaskó er trygging fyrir tjaldvagna, hjólhýsi, fellihýsi og fleiri vagna.
Bætt eru tjón af völdum áreksturs, eldsvoða, veltu bifreiðar sem dregur vagninn, snjóflóða, grjóthruns, skriðufalls, aur- eða vatnsflóðs, óveðurs, þjófnaðar, skemmdarverka, tjóns í flutningi o.fl.
Vagninn er tryggður ásamt venjulegum fylgihlutum hans, þ.m.t. lausafé sem er sannanlega notað með eftirvagninum. Þeir sem ekki þarfnast tryggingar vegna foktjóna á tímabilinu 1. okt. – 30. apríl ár hvert, geta valið 20% ódýrari tryggingu, en foktjón eru þá undanskilin á þessu tímabili.

Geymir þú vagninn þinn inni? Viltu lækkað iðgjaldið þitt?
Við bjóðum þér að lækka iðgjaldið þitt í Vagnakaskó um 20% ef þú þarfnast ekki tryggingar vegna foktjóna á tímabilinu 1. október til 30. apríl ár hvert. Slík tjón verða þá undanskilin í tryggingu þinni. Það eina sem þú þarft að gera er að fylla út formið hér að neðan og staðfesta. Við sendum þér staðfestingu í tölvupósti þegar við höfum lækkað iðgjaldið.
Breyting á Vagnakaskó
Góða ferð í sumar
Forvarnahúsið hefur í samstarfi við veðurfræðing kortlagt vindasama staði sem hafa reynst eftirvögnum og húsbílum erfiðir. Gefinn hefur verið út bæklingur sem sendur verður til viðskiptavina með Vagnakaskó. Aftan á bæklingnum er vindakort og hvetjum við þig til að hafa það með í ferðalaginu. Kortið má einnig skoða hér á vef Sjóvá.