Framrúðuplástur

Framrúðuplástur

Framrúðuplástur – Sparaðu þér eigin áhættuna

Viðskiptavinir okkar með bílrúðutryggingu sem eru svo óheppnir að fá stein í rúðuna geta sparað sér eigin áhættu af dýrum framrúðuskiptum með því að láta gera við hana.
Þannig sleppa viðskiptavinir okkar við að greiða eigin áhættu af viðgerðinni þar sem viðgerð á framrúðu er mun ódýrari fyrir Sjóvá en framrúðuskipti. 
Með því að setja framrúðuplástur strax á skemmda rúðu aukast líkur á því að hægt sé að gera við bílrúðuna á hagkvæman hátt í stað þess að skipta um hana.  Sérfræðingar á bílrúðuverkstæðum meta hvort hægt er að gera við rúðuna.

Hver er þinn ávinningur - 3 kostir við framrúðuviðgerðir

  1. Plásturinn er ókeypis fyrir viðskiptavini Sjóvá
    Allir viðskiptavinir Sjóvá geta nálgast plásturinn í útibúum okkar um land allt.
  2. Enginn viðgerðarkostnaður fyrir þig
    Ef það þarf að skipta um framrúðu þá borgar viðskiptavinurinn eigin áhættu. Með því að láta gera við rúðuna þá borgar Sjóvá viðgerðina að fullu og viðskiptavinum sleppur við að greiða eigin áhættuna.
  3. Styttri viðgerðartími og minna umstang
    Það er mun fljótlegra að gera við rúðuna heldur en að setja nýja í bílinn sem þýðir styttri bið fyrir þig. Auk þess er þetta jákvætt fyrir umhverfið því senda þarf færri rúður í endurvinnslu.
Verkstæði sem eru útbúin fyrir bílrúðuviðgerðir:

Bílrúðuverkstæði

Aðsetur

Póstfang

Sími

Bílrúðan hf Grettisgötu 87 105 Reykjavík 552 5755
Poulsen hf Skeifunni 2 108 Reykjavík 530 5900
Orka ehf Stórhöfða 37 110 Reykjavík 588 1900
Smáréttingar Smiðjuvegi 36 (gul gata) 200 Kópavogur 588 4644
GlerPro Dalvegi 16c 201 Kópavogi 453 7075
Bílrúðuþjónustan Grófin 15c 230 Reykjanesbæ 421 7879
Bifreiðaverkstæði Bjarna Sigurjóns Laufásgötu 5 600 Akureyri 460 3061
Car-x Draupnisgötu 6 600 Akureyri 462 4200
Höldur Draupnisgötu 6 600 Akureyri 461 6060

Sparnaðurinn fer eftir því hve dýrt er að skipta um rúðu í bílnum, nokkur dæmi:

Bíltegund

Áætlaður kostnaður

15% eigin áhætta

Þú sparar

Toyota Corolla

65.000

10.000

10.000

VW Golf

55.000

8.000

8.000

Hyundai Santa Fe

60.000

9.000

9.000

Peugeot 307

105.000

16.000

16.000

Toyota Land Cruiser

80.000

12.000

12.000

Subaru Legacy

120.000

18.000

18.000

Nissan Patrol

105.000

16.000

16.000

Hvað þarftu að gera?

  • Þú nálgast plásturinn í næsta útibúi Sjóvá eða á framrúðuverkstæðum.
  • Hefur framrúðuplásturinn ávallt í hanskahólfinu.
  • Segir öllum sem keyra bílinn frá plástrinum og hvernig hann virkar.
  • Setur plásturinn strax á þegar skemmd kemur í framrúðuna.
  • Ferð eins fljótt og kostur er á verkstæði og lætur gera við framrúðuna.


Hvernig virkar plásturinn?

  • Þegar skemmd kemur í framrúðu geta safnast óhreinindi í brotið og súrefni borist í plastfilmu rúðunnar.
  • Plásturinn er settur á til að hylja sárið svo að súrefni og óhreinindi komist ekki að.
  • Fjarlægðu pappírshliðina á plástrinum, límdu hann utan á bílrúðuna og passaðu að hylja skemmdina vel.
  • Það þarf að setja plásturinn strax á rúðuskemmdina til að hlífa sárinu (innan tveggja klst).


Hvernig bjarga framrúðuverkstæðin rúðunni?

  • Rúða þrifin, þurrkuð og hituð.
  • Óhreinindi hreinsuð úr sárinu og sárið lofttæmt.
  • Fyllivökva er dælt í skemmdina.
  • Glæra sett yfir sárið.
  • Glæra svo hert með útfjólubláum geisla.
  • Glæra loks hreinsuð af rúðu og bíll tilbúinn.


Fjórar leiðir til að tilkynna framrúðutjón

  1. Farðu með bílinn á verkstæði þar sem tjónið er metið og tilkynnt.
  2. Tilkynntu tjónið rafrænt á www.sjova.is eða thjonatjonusta@sjova.is.
  3. Fylltu út tjónaskýrslu og komdu skýrslunni til Sjóvá.
  4. Hafðu samband við Sjóvá í síma 440 2000.






Tryggingar

Veldu leið sem hentar þér:

Tilkynna tjón


3 Einföld skref
Plástur á framrúðuna


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir