Sjóvá-Almennar líftryggingar hf.

- Sjóvá-Almennar líftryggingar hf., sem fram til loka ársins 2003 hét Sameinaða líftryggingarfélagið hf. (Samlíf) var stofnað 1. maí 1985. Félagið á þó lengri sögu eða allt frá árinu 1934 þegar líftryggingastarfsemi hófst hér á landi með stofnun Líftryggingadeildar Sjóvá, sem í samræmi við lagabreytingu á árinu 1976 var breytt í hlutafélag undir heitinu Líftryggingarfélag Sjóvá.
-
Félagið varð til við sameiningu Líftryggingarfélags Sjóvá hf. og Líftryggingamiðstöðvarinnar hf.
-
Á árinu 1989 voru líftryggingarstofnar Almennra líftrygginga hf. og Líftryggingarfélagsins Varðar hf. yfirfærðir til félagsins. Þannig varð til stærsta líftryggingafélag landsins og hefur markaðshlutdeild félagsins verið milli 40 og 50% síðustu ár.
- Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. er dótturfélag Sjóvá-Almennra trygginga hf. og er höfuðaðsetur beggja félaga í Kringlunni 5 í Reykjavík. Útibú Sjóvá um allt land annast jafnframt þjónustu fyrir viðskiptavini en ráðgjöf um vátryggingar félagsins.
Stjórn Sjóvá-Almennra líftrygginga hf.

Stjórn félagsins skipa:
- Heimir V. Haraldsson stjórnarformaður
- Sveinn Segatta
-
Auður Daníelsdóttir
Framkvæmdastjóri er Helgi Bjarnason.
