Starfsumsóknir

Gott starfsumhverfi
- Sjóvá leggur áherslu á að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki sem býr yfir faglegri þekkingu og þjónustulipurð.
-
Mikilvægt er að allir leggi sitt af mörkum til að skapa góðan starfsanda en hann byggist ekki hvað síst á virðingu og sanngirni í garð samstarfsfólks, hjálpsemi, fræðslu og hvatningu.
-
Sjóvá býður upp á starfsumhverfi sem laðar að sér hæft starfsfólk og skapar starfsmönnum tækifæri til að eflast og þróast í starfi.
-
Sjóvá er Fyrirmyndarfyrirtæki 2008, en þar lenti Sjóvá á topp 20 lista í könnun VR, þar sem starfsmenn gefa vinnustaðnum einkunn.
Almenn starfsumsókn
Senda má almenna umsókn með upplýsingum um náms- og starfsferil. Umsóknir eru varðveittar í u.þ.b. 6 mánuði nema um annað sé óskað. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
